Rafræn bókabrenna

Heimildarmynd Alex Jones, The Obama Deception, var nýlega fjarlægð af Youtube af “hakkara”.  Myndin fékk um 100.000 Youtube áhorfendur á degi hverjum og vinsældir hennar voru stigvaxandi.

En hvers vegna að eyða þessu eintaki myndarinnar?  Það er jú enn hægt að finna myndina, meira að segja á Youtube.  Hvað vannst með því að eyða þessu eina eintaki?

Svarið felst í virkni leitarvéla.  Þegar fólk notar hlekki úr leitarniðurstöðu, þá gefur það tenglinum meiri vigt þegar næsti maður leitar með svipuðum eða sömu leitarorðum.  Þessi vigt ræður því í hvaða röð niðurstöðurnar eru birtar.  Þannig að ef leitað er að Obama, eða Barack Obama, þá gæti The Obama Deception hæglega orðið ein af fremstu leitarniðurstöðunum sem blasa við.  

Þannig var nú komið fyrir leitarvél NSA (google) að kerfið var farið að auglýsa eitt helsta vopn andstöðunnar gegn hægri / vinstri hjólförunum, og skriðan var farin af stað og magnaðist hratt.  Hugbúnaðarbreytingar, ”leiðréttingar” til að sía út vigt tengla án þess að eyðileggja virkni leitarvélarinnar í heildina,  eru flóknar og taka tíma.  Því virðast kerfispúkarnir hafa brugðið á það ráð að setja á svið “tölvuinnbrot” í þeirra eigin kerfi (youtube) þar sem tölvurefurinn gerir ekki það sem steríótýpa tölvurefa myndi gera, svo sem að pósta einhverju sem auglýsir hans smáa egó á fjölsóttri rás, heldur frekar það sem ritstkoðari myndi gera, að eyða efni sem fólk vill skoða. 

Þess má geta að nú nokkrum dögum eftir þetta inngrip, þá er “obama deception censored” sá leitarfrasi sem er í mestum vexti á leitarvél NSA.  Strax á eftir er önnur heimildarmynd Alex Jones, Fall of the Republic.

En þeim sem vilja horfa á þessi stykki bendi ég á að hlaða þeim bara niður með Torrent.  Það er fullkomlega löglegt, Alex Jones hvetur fólk til að afrita heimildarmyndir sínar og dreifa þeim. 

Einfalt forrit til að sækja torrent skrár: µTorrent – a (very) tiny BitTorrent client

Obama Deception:  HI-Quality-20090310 ObamaDeception.avi

Fall of the Republic: AlexJones FallOfTheRepublic.avi

Sjá einnig: Censorship Alert: Obama Deception Illegally Removed from You Tube

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments