Rafbíll sem aldrei þarf að hlaða

Þetta er bíll fyrir 21. öldina, hann virkjar orku umhverfis bílinn um leið og mótorinn vinnur. 

Ekki nóg með að hann nái þar í smá auka orku, eins og tvinnbílar nota rafmótorinn til að bremsa og hlaða þar með batteríið í leiðinni, heldur er virkni mótorsins slík, að hann nýtir rafmagnið 133 prósent… það er að segja, ef hann keyrir af stað með batteríið hálfhlaðið, þá er það fullhlaðið þegar þú kemur til Akureyrar. 

Það eyðir sem sé ekki orku af batteríinu að keyra, heldur hleður það.  Þannig að ef bíllinn er rafmagnslaus, þá er það vegna þess að honum hefur bara ekki verið ekið í langan tíma.

Heppilegt?

Algert eitur fyrir Magma og fleiri einokunardurga, en góðar fréttir fyrir okkur sem viljum bara lifa í friði fyrir stjórnvöldum, sköttum og auðhringjum í Zeitgeist framtíðarborgum.

Tæknin er byggð á hugmyndum snillingsins Nikulásar Tesla, en baktjaldamenn hafa reynt að halda hans dóti undir blæju allt frá hans fyrstu tilraunum og pappírum.  Hann afneitaði viðskiptareglum hagkerfisins og vildi bara gera búnað sem nýttist fólki án þess að milliliðir og einokunarkóngar geti skammtað og gjaldmælt hverja okkar hreyfingu.

Uppfynningamaðurinn Ismael Aviso áætlar að það kosti um 4.000 dollara í smásölu að breyta venjulegum bensínbíl í einn þessara heppilegu sjálf-hlaðandi bíla, eða svipað og kostar að breyta bensínbíl í metanbíl.  Metanbílinn þarftu að fylla reglulega hjá einokunarkóngunum, en með 133% virkan rafmótor í bílnum, þá er ekkert eftir nema krúsa hringveginn fyrir núll krónur.  Góður díll og miðjufingur til ÓPEC, N1, Magma og allra hinna smákónganna.

Philippine DOE Verifies Self-Charging Electric Car

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments