
Í október í fyrra var haldinn alþjóðlegur fundur í Reykjavík þar sem kynntar voru tæknilegar upplýsingar sem nota þarf til að meta áhættu vegna slysa í kjarnorkukafbátum og öðrum kjarnorkuknúnum farartækjum (t.d. skipum). Venjulega hvílir mikil leynd yfir upplýsingum af þessum toga og því er mikilvægt fyrir borgaralegar stjórnsýslustofnanir að hafa almennt viðurkennd tæknileg viðmið sem unnt er að vísa til í úttektum. Þessum fundi er nú fylgt eftir með alþjóðlegri ráðstefnu 25.-26. ágúst. Geislavarnir ríkisins sjá um framkvæmd ráðstefnunnar í samvinnu við Landhelgisgæslu Íslands og meðal þátttakenda eru ýmsir sérfræðingar frá Norðurlöndum og Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni, IAEA.
Þessi alþjóðlega ráðstefna hófst á öryggissvæðinu í Keflavík klukkan 3 í dag, 25.8.2011. Klukkan 7 borða fulltrúarnir saman kvöldverð, kannski ganga þeir fremstir í fordæmi sínu um ríkisumhyggju og öryggisvörslu um borgarana og snæða japanskar landbúnaðar og sjávarafurðir frá Fukushima héraði. Á morgun halda þeir svo áfram en ráðstefnunni lýkur síðdegis á morgun.
https://www.gr.is/nks-b/marenuc/MareNuc_programme.pdf

Comments
Powered by Facebook Comments