Tuggutafla sem bragðast eins og buff verður fljótlega til sölu fyrir auðtrúa hundaeigendur sem fást til að trúa því að hundar þeirra séu ‘þunglyndir’. Framleiðendur segja lyfið ‘hjálpa’ við að lækna ‘árátturöskun í hundum’, sem virðist hrjá þúsundir dogga og veldur gegndarlausum sleikjum, væli og eltingarleikjum við hið kvika og illveiðanlega skott hundanna.
Lyfið er eins og snákaolían forðum, gott við ýsmu öðru svo sem slefi, nagi og óróa, sem framleiðendur segja eiga rætur í þunglyndi sem hellist yfir hundana við langar fjarverur eigendanna.
Læknisfræðilegar prófanir sem fóru fram á yfir 660 geðsjúkum gæludýrum í Evrópu og Bandaríkjunum sýndu betri hegðun dýranna innan 8 vikna. Þá er bara ósvarað hvort þær rannsóknir eru raunverulegri heldur en rannsóknir á lyfjum fyrir fólk, sjá Játar fölsun á tugum lyfjarannsókna.
Talsmaður lyfjaauðhringsins Eli Lilly sagði meðferð á förunautum úr dýraríkinu nýjan markað fyrir geðlyf, 10.7 milljónir aðila með löng nef þjást af aðskilnaðaróreglu og 73% kvikyndanna sýndu meiri bata með lyfinu heldur en með sálfræðimeðferð einni saman.
mynd: A. Blight
Comments
Powered by Facebook Comments