Prestur tekinn fyrir álög á JP Morgan

Séra Billy Talen, sem er  sjálfskipaður prestur og fyrrum borgarstjóraframbjóðandi í New York, var handtekinn um páskana fyrir að leggja “heilög álög” á JPMorgan Chase bankann vegna fjármögnunar á umhverfisspillandi námuvinnslu.  Presturinn og grænskikkjuklæddir fylgjendur hans mögnuðu seið gegn tveimur útibúum bankans og sögðu Morgan Chase hafa átt þátt í að eyðileggja 450 fjöll, eyða skógi á 800 fermílum og mengað meira en 1.200 mílur af ám.

Séra Billy leiddi kór sinn sem nefnist “Gospelkórinn Líf eftir Kringluna” í athöfn þar sem kórfélagar “lögðu inn” hrúgur af “heilagri mold frá Coal River fjöllum” á gólf við hraðbankann.

Við útibúið á gatnamótum St. Marks Place og  annars strætis framdi kórinn göldrótta “dulspekiúttekt á fjármunum” meðan presturinn predikaði yfir viðskiptavinum með gjallhorni. 

Margir áhorfendur hrifust og tóku myndir þegar kórinn söng hástöfum “Chase, Bring Us Back the Mountains” við lagið “Go Tell It On the Mountain.”

Lögreglan kom ekki fyrr en hópurinn var kominn í næsta útibú þar sem þeir “lögðu inn” meiri mold á gólf við hraðbanka.

Rev. Billy Arrested on Easter For ‘Hexing’ Bank

CC Mynd: Thomas Good / Next Left Notes
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: