
Í gegn um tíðina hefur mannkyn átt sína sérfræðinga sem það hefur þurft að halda uppi. Það hefur aldrei verið auðveldara en nú, á tímum tækni og vélavæðingar, en í mörgum tilfellum, var það þungur baggi að halda uppi stétt aðals og menntamanna, sem ekki tóku þátt í lífsbaráttunni og kröfðust stundum mikilla skatta af öðrum, misfrjálsum mönnum, svo þeir gætu lifað við þann munað og frelsi sem þeir meinuðu öðrum að njóta.
Nú á tímum getur iðnvæddur heimurinn framfleytt gríðarlegum fjölda fólks, sem ekki þarf endilega að vinna mikið til að sjá sér fyrir farborða og sinna hugðarefnum sínum, mennta sig, glíma við lífsgátuna, slæpast, horfa á fótbolta, grilla, ferðast, eða hvað það er sem fólk vill gera.
Það sjá sumir sem vandamál.
Þeir líta svo á að mannkynið sé búfénaður þeirra, og nú hafi dýrin á bænum of mikinn frítíma og of mikil völd.
Hvernig eiga mikilmenni að viðhalda yfirburðum sínum þegar jafnvel synir fiskverkafólks og kotbænda geta komist í bestu menntastofnanir þjóðarinnar og átt nógan frítíma til að skoða lífið og tilveruna?
Þetta “vandamál” kom þeim samt ekki í opna skjöldu. Þeir vita hvert stefnir, og þeir hafa sögubækur sem eru ómengaðar og innihalda raunverulegan fróðleik um það hvernig dýrin á bænum haga sér við ýmsar aðstæður.
Iðnbyltingin var erfið fyrir venjulega fólkið. Það þrælaði í verksmiðjum og sérfræðingar reiknuðu út hvernig best jafnvægi væri á lífaldri og vinnudegi. Fólkið átti ekki að lifa til elliára, en lifa nógu lengi þó, til að ná blómaárunum. Börn geta unnið, en fullorðnir vinna bara betur. Þannig að verkafólkið varð að lifa nógu lengi til að “borga” upp æskuárin, þar sem litlar hendur “unnu varla fyrir matnum” sínum.
Þegar leið á iðnbyltinguna, þá smám saman styttist vinnudagurinn og fólkið fór að lifa lengur og aðeins betur. Mikilmennin höfðu áhyggjur og skipulögðu íbúðahverfi þessara smámenna á fenjasvæðum og mýrum, þar sem óheilsusamlegra var. Fátækrahæli og sjúkrahús voru hönnuð til að hámarka smit og dauða, til að koma “afætum” sem fyrst fyrir.
Fyrri heimstyrjöldin var háð til að koma hugmyndinni um alþjóðaríkisstjórn á koppinn. En líka til að drepa svolítið af búfénaðinum, sem var farinn að fjölga sér talsvert umfram þörf á vinnuafli. Það eru til yfirlýsingar frá mikilmennum um það að fyrri heimstyrjöldin, sem var ótrúlega heimskuleg og blóðug, hafi bara alls ekki tekið nógu mörg mannslíf.
Seinni heimstyrjöldin var nauðsynleg, vegna þess helst að hugmyndin um heimsríkisstjórn, “the league of nations,” fékk bara ekki nógu mikinn stuðning frá voldugum þjóðum. Sérstaklega voru Bandaríkjamenn þverir í þessu tilliti.
Eftir seinni heimstyrjöldina komust hinsvegar Sameinuðu Þjóðirnar á legg og hafa smám saman sankað að sér meiri og meiri miðlægum völdum. Á síðustu árum má sjá hvernig þeir eru að koma fram undan blæjunni og vilja bara fara að taka við af þjóðríkjunum. Þar á ég við “alþjóðlega heilbrigðisráðuneytið” WHO, sem hnyklaði vöðvana undir yfirskini svínaflensu, og svo IMF / Alþjóðabankann, sem vill endilega að við treystum á þá til að laga efnahagskerfið, sem þeir hafa verið iðnir við að skemma á síðustu áratugum.
Allir eiga að vera víxlháðir og ósjálfbjarga, treysta á alþjóðlegar stofnanir til að skammta sér mat og kolefniskvóta í nýjum heimi undir alþjóðlegri stjórn sérfræðinga og vísindamanna. Miðlæg stjórn sérfræðinga og skipuleggjanda, ekki ósvipað og í Ráðstjórnarríkjunum, nema að í þessum nýja heimi er ekkert járntjald til að flýja yfir í frjálsara skipulag.
En mikilmennin virðast að einhverju leiti hafa misst stjórn á búfénaðinum. Internetið hefur snúist í höndum þeirra. Það virkar eins og þeir vildu að því leiti að fólk streymir inn á netið og skráir endalaust haf upplýsinga um sálft sig, hvort heldur sem er viljandi, eins og barnalegt fólk á feisbook og fjölskyldubloggsíðum gerir, eða óviljandi, eins og venjulegir notendur gera þegar þeir nota leitarvél NSA til að finna það sem þeir hafa áhuga á, og í leiðinni, ljóstra upp hvað þeir hafa áhuga á.
Á internetinu hefur sprottið grasrótarframtak sem gerir fólki kleyft að mennta sig. Síður eins og kryppa eru bara toppurinn á ísjakanum, örlítið hvísl á móti gjaldþrota stórstraumsmiðlinum, sem berar sig sífelt betur, þegar alræðisöflin beita sér í auknum mæli og stórstraumurinn reynir að spinna lygavef til að afvegleiða fólk. Það vita allir innst inni að fjölmiðlar ljúga og stjórnmálamenn eru spilltir. Fólk bregst á misjafnan hátt við, margir reyna að ljúga að sjálfum sér og lepja upp lygavefinn. Aðrir verða leitandi og þegar þeir sjá síður eins og kryppu, eða aðrar jaðarfréttasíður, þá smám saman komast þeir í upplýsingar, og öðlast þá menntun, sem hefur verið fjarlægð úr almennum menntastofnunum samfélagsins.
Hafsjór fróðleiks er aðgengilegur á netinu, mest á erlendum tungumálum. Útvarpsþættir sem hlaða má í iPod, fréttasíður, youtube myndefni og heilu heimildarkvikmyndirnar. Ég sá til dæmis “Enron – The smartest guys in the room” mörgum árum áður en hún var sýnd í sjónvarpinu. Hún er nú til á DVD með íslenskum texta. Ég fékk hana á 990 kall í Bónus um daginn.
Eru mikilmennin að missa stjórn á massanum? Munum við verða meðvituð í nægu mæli til að varpa oki þessarar svikamyllu af okkur, blekkinga sem hafa viðgengist í mörg þúsund ár? Eða munu þeir ná að koma á sinni nýju heimsmynd, þar sem búfénaðinum er haldið í 500 milljón manns á heimsvísu og “friður” ríkir, friður í merkingunni, engin ógn fyrir þá.
Það voru bara fáein prósent bandarísku þjóðarinnar sem voru virk í frelsisstríðinu, þegar þeir vörpuðu oki Englandskrúnu af sér um hríð.
Það þarf aðeins fáein prósent af fólki á heimsvísu til að segja nei við blekkingunni.
Framundan eru lokaskrefin í átt að nýrri heimsmynd, nýju lénskerfi þar sem okkar hlutverk er aftur gamla þjónustuhlutverkið. Ekkert meira grill eða ferðalög til dægrarstyttingar.
Þeir sprikla við að loka internetinu, breyta því í leyfisskyldan rekstur, þar sem þú birtir ekkert nema það sé lesið yfir af fulltrúum stjórnvalda.
Olíuatvikið á Mexíkóflóa kemur í staðinn fyrir Kaupmannahafnarráðstefnuna. Climategate sprengdi blekkinguna um “hnattræna hlýnun” eða “veðurfarsbreytingar”. Nú trúa fleiri á jólasveininn en “veðurfarsbreytingar” í Bandaríkjunum. En dagskráin sem átti að þvinga upp á okkur í nafni þeirra verður rekinn í gegn undir því yfirskini að berjast gegn hörmungunum sem eru að gerjast á Mexíkóflóa og nánast enginn fréttaflutningur er af.
Kannski munu þeir ráðast á Íran með kjarnavopnum og koma á hörðu alræði um tíma, meðan þeir “hreinsa” upp þá sem hafa menntað sig og eyða bókum og gögnum.
Margir skilja þetta og kjósa jafnvel að lifa í ótta, þegja, reyna að fela slóð sína á internetinu með einhverjum ip göldrum og gerfislóðum.
Aðrir hugsa eins og ég, vita að við lifum bara andartak, dauðinn er óumflýjanlegur. Viljum við lifa og deyja sem þrælar, eða viljum við reyna að standa gegn myrkraöflunum, reyna að tryggja framtíð fyrir börnin okkar og lifa áfram sem meiri menn, að minning okkar verði sú að við höfum reynt, meðan aðrir lágu flatir, hræddir, kúgaðir, andlausir þrælar.
” Aðrir hugsa eins og ég, vita að við lifum bara andartak, dauðinn er óumflýjanlegur. Viljum við lifa og deyja sem þrælar, eða viljum við reyna að standa gegn myrkraöflunum, reyna að tryggja framtíð fyrir börnin okkar og lifa áfram sem meiri menn, að minning okkar verði sú að við höfum reynt, meðan aðrir lágu flatir, hræddir, kúgaðir, andlausir þrælar.”
100% sammála.
http://www.youtube.com/watch?v=2iPPfOKyayg&feature=related
Svá góðr
1
Góður pistill. Af hverju flytja íslenskir miðlar ekki fleiri fréttir af BP “slysinu”. Fréttabann á RÚV?
Svá góðr
3