Persónuvernd gegn myndavélum

Fyrirsögnin er smá villandi því Persónuvernd er ekki á móti myndavélum heldur hver notar þær og hvernig.  En tilefni þessara skrifa er nýlegur úrskurður Persónuverndar vegna mynda af meintum búðarþjófum hjá Norvik.  Fyrr á árinu kvörtuðu nokkrir einstaklingar vegna notkunar mynda af þeim í Nóatúnsverslunum.  Þegar Persónvernd mætti á staðinn var búið að eyða þessum myndum.  En aðrar myndir af meintum þjófum fundust hangandi upp á vegg og í spjaldamöppum sem gáfu Persónuvernd tilefni til frekari skoðunnar.

Í stuttu máli þá var Norvik óheimilt að dreifa myndum af meintum þjófum til annara fyrirtækja innan samstæðunar s.s. Nóatúns.  Þó myndavélarnar og upptökubúnaðurinn hefði verið staðsettur í þeim verslunum.  En samkvæmt úrskurði Persónuverndar þá taldist Norvik hf.  til ábyrgðaraðila myndavélakerfisins.  Úrskurðurinn takmarkast aðeins við þessa tilteknu þjófamyndamiðlun milli Norvikur og annara fyrirtækja í samstæðunni.  En ekki hvort vöktunin og vinnslan sjálf hafi samrýmist lögum nr. 77/2000 eða hvort ákvæði þeirra hafi verið uppfyllt að öðru leyti, eins og segir í úrskurðinum.

Ég fæ ekki betur séð en starfsfólki Nóatúns og verslunarstjóra á hverjum stað sé óheimilt að skoða myndir úr eftirlitskerfi búðanna.  Þó það hljóti undir öllum kringumstæðum að vera starfsfólkið á hverjum stað sem kemur upp um þjófnað.  Að hengja sig á að Norvik hf sé ábyrgðaraðili myndavélakerfisins og því sé starfsfólki Nóatúns óheimilt að skoða myndir úr kerfinu sýnir ákveðið hugmyndarflug. Sérstaklega vegna þess að hvert kerfi er eingöngu fyrir hverja búð fyrir sig og öll gögn geymd á staðnum.

Vill Persónuvernd að forstjóri Norvikur keyri milli búða sinna og skoði upptökur af meintum þjófum?

http://www.personuvernd.is/efst-a-baugi/urskurdir-og-alit/2010/greinar/nr/1116

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments