Ótrúlegt innsæi frá 1958

Róbert Welch stofnaði The John Birch Society árið 1958, og hér er upptaka frá fundi samtakanna árið 1974, þar sem Welch vitnar í sjálfan sig frá stofnárinu 1958. 

Nú er árið 2011 og ef eitthvað, þá eru málflutningur hans enn frekar viðeigandi í dag.  Hér eru nokkur lykilatriði úr myndskeiðinu.

Hann fjallar um langtímaáætlanir innanbúðamannanna, þar á meðal að sjálfræði landsins verði hægt og hljótt gefið upp á bátinn til ýmissa alþjóðlegra stofnana, Sameinuðu þjóðanna þar framarlega í flokki.

Markmið elítunnar 

  1. Stórkostleg útvíkkun á fjárútlátum ríkisins, í allt sem hugsast getur í þeim tilgangi að sóa sístækkandi fúlgum bandarísks fjármagns, helst engum til gagns
  2. Hærri, og svo miklu hærri skattar
  3. Sívaxandi fjárlagahalli, þrátt fyrir hærri skatta
  4. Villt verðbólga og rýrnun á dollaranum
  5. Ríkisákvörðun á vöruverði, launum og hráefni undir því yfirskini að halda niðri verðbólgu
  6. Stóraukin sósíalísk áhrif í öllum kimum efnahagslífsins og öllum þáttum daglegs lífs.  Því fylgir svo gríðarlegur vöxtur á stjórnkerfinu og skriffinnsku
  7. Gríðarlegur vöxtur á völdum alríkisbatterísins í Washington og minna hlutverk ríkjanna, þau verða á endanum eins og sýslur eru nú [1974] innan ríkjanna
  8. Vaxandi fjárframlög og áhrif alríkisins innan menntakerfisins
  9. Að áróður fyrir “friði” verði hamraður í sífellu inn í huga almennings, friður í kommúniskum skilningi
  10. Afleiðingin af 9 er friðkaupastefna þar sem Bandaríkin láta allt yfir sig ganga.

Hann fór svolítið út af sporinu í þeim tveim síðustu, en hin átta negldi hann algerlega.

Í síðari hluta myndbandsins fer hann yfir það hvað ætti að gera til að endurreisa Bandaríkin til betri vegar, nýju Bandaríkin.

  1. Segja sig úr Sameinuðu þjóðunum og endurreisa fullt sjálfstæði landsins
  2. Taka aftur upp gullfót fyrir dollarann, þetta telur hann að komi í veg fyrir verðbólgu
  3. Minnka ríkisbatteríið um 50% (miðað við stærð þess 1974)
  4. Kalla allan bandarískan her heim, nema þingið lýsi yfir stríði
  5. Hætta ríkisafskiptum sem ekki eru heimiluð í stjórnarskránni

Ron Paul er sá bandaríski nútímastjórnmálamaður sem helst gæti passað sem frambjóðandi John Birch Society, en það er nokkurs konar þjóðernissinnað bandarískt íhald, sem bæði Repúblikanar og Demókratar reyna nú að þykjast aðhyllast, því þangað leitar hugur bandaríkjamanna, þó þeir séu enn fastir í hjólförum tvíeinflokksins. 

Tvíenflokkurinn stefnir í öfuga átt í flestum atriðum, þeir vilja frekara framsal á sjálfstæði til alþjóðastofnana, meiri stríð, meiri ríkisafskipti og setja túrbínu á sósíalið.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments