Internetið er kyndug kýr og þar er margt skrítið að finna.
Þetta er nú samt algert met. Vinsælasta Jútúbb myndbandið frá síðasta ári er í raun fréttaútsending sem tekin var til endurblöndunar af Auto-tune the News jútúbb rásinni, en það eru Gregory bræðurnir sem standa að henni, en einn af þeim er kona annars og sú spilar á bassa.
Þeir nota hinn svokallaða Auto-Tune búnað til að laga venjulegar fréttaútsendingar að tónlist sem þeir semja, svo er það allt klippt saman og úr verður vægast sagt… furðuleg afurð.
Það má eiginlega segja að hinar eldsnjöllu Rapp-fréttir, sem við birtum hér fyrir nokkru, séu innblásnar af þessu fyrirbæri, allavega fengu þeir rapp-fréttamenn lánað lagið sem fylgir þessum pistli í sitt síðasta meistaraverk, þar sem Hillary Clinton, Alex Jones, Berlusconi, Gaddafi, sænska smokkakjötbollan og Júlli Assange komu öll við sögu (hér).
En kíkið á þessa söngfrétt. Þetta er ótrúlega grípandi.

og svo upprunalega frétin ..
http://www.youtube.com/watch?feature=iv&annotation_id=annotation_576468&v=EzNhaLUT520
67m áhorf á upprunalegu útgáfuna af “Bed intruder”
http://www.youtube.com/watch?v=hMtZfW2z9dw&list=SL
og nú skil ég þessa vitleysu betur
http://www.youtube.com/watch?v=zjYSERaXEGI