Í grein sem Haraldur Hansson skrifar á bloggi sínu fer hann kostulegum orðum um Össur Skarphéðinsson. Sem samkvæmt greiningunni trúir á Harry Potter lausnir á efnahagsvanda þjóðarinnar. Hægt sé að galdra öll vandræði í burtu með einu pennastriki ef við göngum í ESB.
“Það er hægt að spara heimilum stórfé með því að taka upp evru, sagði utanríkisráðherra í DV-grein nýlega og vísaði í útreikninga kaupfélagsstjóra úr Borgarfirði. Hann boðaði töfralausn þar sem vextir lækka, útgjöld minnka, allir græða og – hókus pókus … það kostar ekkert; enginn tapar.
En efnahagsbati og stöðugleiki er ekki eitthvað sem kemur í gjafaumbúðum frá Brussel. Það er sök sér þótt kaupfélagsstjóri trúi á Harry Potter lausnir en ekki boðlegt að ráðherra prediki þær á prenti. Þær virka nefnilega ekki í alvörunni.”

Comments
Powered by Facebook Comments