Öryggisgæsla allstaðar, ekki bara í flugi

Lögreglan í Tampa, TSA og Öryggisverðir heimalandsins taka höndum saman um að “tryggja öryggi fjölskyldu þinnar” samkvæmt fréttum ABC News, með því að gera öryggisleit af handahófi á rútustöðvum.  Það er enn eitt dæmið um hvernig harðstjórnin á flugvöllunum er á leiðinni inn í bæinn.

Sprengiefnahundar og fíkniefnahundar á Íslandi, þukl eftir vopnum, málmleitarveifur og hanskaklætt grams í veskjum er nú allt að verða hluti af daglegri rútínu okkar þegar réttindum okkar er fleygt í nafni “öryggis”.

Í öllum svona fréttum er staðalatriði að hafa ‘farþega’ eða ‘almennan borgara’ sem er spurður álits og sá er bara feginn að rútan verði nú ekki sprengd í loft upp, þökk sé mönnum kóngsins sem halda aga á þrælunum.

Fólk sem er fullkomlega sátt við að TSA ruddar góni á nakta líkama þeirra og barna þeirra segja með fyrirlitningu við þá sem vilja halda í virðingu og réttindi sín: “Ferðist bara ekki með flugi, þá þarftu ekki að fara í gegn um öryggisgæsluna.”  Næst verður það: Ekki fara með rútu, og svo ekki fara í verslunarmiðstöðvar, svo á endanum, þú þarft ekki að fara í gegn um eftirlitið ef þú bara heldur þig heima.


Find more videos like this on 12160.org

http://www.infowars.com/fourth-amendment-trashed-as-airport-tyranny-hits-the-streets/

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: ,