Pistlahöfundurinn og fyrrum embættismaður í stjórn Ronalds Regan Paul Craig Roberts segir það nú opinbert að Bandaríkin séu orðin lögregluríki.
- Obama heldur áfram með dagskrá Bush og Bandaríkin eru orðin lögregluríki
- Dr. Siddiqui, Bandaríkjakona af pakistönskum ættum var sennilega fyrsti ríkisborgari Bandaríkjanna sem brotið var á. Henni var rænt og haldið í áraraðir án dóms og laga í herfangelsi þar sem hún var pynduð, og neitað um grunnréttindi sem tryggð eru í stjórnarskránni.
Sjá Fórnarlamb ‘hryðjuverkakvótans’ - Dennis Blair, yfirmaður innlendra njósna hefur lýst því yfir að Bandaríkjastjórn hafi útbúið lista yfir bandaríska borgara sem á að myrða erlendis, með öðrum orðum, stjórnvöld ætla að drepa eigin borgara, án handtöku, án dómsmeðferðar, án lagastoða.
- Þetta tvennt segir Roberts að sé skilgreiningin á lögregluríki, fangelsun án dóms og laga og dauðasveitir.
- Lögfræðispekingar hafa gefið út að þessi atriði teljist einnig stríðsglæpir samkvæmt Genfarsáttmálanum.
Þulur: Hví heldur Obama áfram með Bush stefnuna í átt að lögregluríki þvert á fyrri yfirlýsingar um að loka Guantanamo og hætta pyndingum?
Roberts: Góð spurning, það er engin munur á stjórn þessara tveggja forseta og það bendir til þess að það hafi farið fram valdarán bak við tjöldin. Lög landsins og stjórnarskrá hafa ekkert gildi fyrir stjórnvöldin. Þau starfa algerlega fyrir utan alla lagaramma og með lítilsvirðingu fyrir lögunum.
Hrollvekjandi viðtal.
Sjá einnig grein Paul Craig Roberts: It Is Now Official: The US Is a Police State

Comments
Powered by Facebook Comments