Ríkisskólar útskrifa ómenntuð vélmenni

Einn af spádómum Gerald Celente um nánustu framtíð er um hrun á menntakerfinu.  Að skyndilega átti fólk sig á því að “menntaða” fólkið sé ekki menntað, að skírteini úr háskóla eða menntaskóla sé langt frá því að vera trygging á heilsteyptum einstaklingi með þjálfun í þekkingu, skilningi og speki.  Hann vill meina að skólar séu orðnir að verksmiðjum sem framleiða vöru í magni en ekki gæðum.

Anthony Seldon, foringi í Wellington háskóla, fyrrum skólastjóri Brighton háskóla og ævisöguritari Tony Blair segir of marga nemendur óhæfa til sjálfstæðrar hugsunar um námsefnið, þeim skorti hæfni á persónulegum sviðum og séu “lítið annað en vel æfð vélmenni” eftir að hafa fengið menntun sem skortir andlega dýpt og snerpu.

Seldon hefur gefið út bæklinginn “Endalok verksmiðjuskóla”, þar sem hann greinir skólakerfið og leggur til 20 atriði til úrbóta.

Meðal fimm atriða sem hann nefnir til að styðja grundvallarbreytingar á skólakerfinu er til dæmis sú staðreynd að þó skólakerfið hafi fengið mun meira fé undir stjórn verkamannaflokksins heldur en nokkru sinni áður, þá hafi það ekki skilað sér í betri menntun.  Hann vill einnig meina að framtíðin þarfnist ekki hersveita af vélmennum sem hafa sérfræðiþekkingu í að æla upp svörum á þröngu sviði sérþekkingar, heldur fólks sem hefur alvöru skilning í ekki aðeins einu, heldur á margvíslegum sviðum fræða og hvernig þau tengjast sín á milli.

Meðal úrbóta sem hann leggur til má nefna alvöru sjálfstæði skóla frá menntayfirvöldum.  Hann vill að skólar fái að ráða vali á námsefni, stærð skóla, umsóknarferli í skólann, agareglum, skólatíma og hvort skólar vilji einbeita sér að öðru kyninu eða kenna báðum.  

Tillögur Seldon eru settar fram á fáeinum blaðsíðum, en bæklingurinn er alls 97 síður, þar sem hann fjallar ýtarlega um hina ýmsu þætti í skólanum sem eiga að geta skilað betur menntuðu fólki.

An end to factory schools

Forsíðumynd: © Yury Shirokov | Dreamstime.com

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments