Olíulekinn mjólkaður

 Lindsey Williams, fyrrum olíuklerkur og höfundur bókarinnar “The Engergy Non-Crisis”, hefur innanbúðarupplýsingar varðandi olíulekann í Mexíkóflóa.  Fréttirnar eru ekki góðar.

Lindsey Williams er fyrrum prestur olíufélaganna á olíusvæðum í Alaska.  Hann vann um árabil með veltengdum elítumönnum.  Nú er hann hættur þeim störfum, en hefur snúið sér að skrifum og fyrirlestrum til að stytta sér stundir.  Hann hefur haldið sambandi við að minnsta kosti einn af fyrrum foringjum sínum frá Alaska, og færir okkur reglulega stórkostlegar fréttir frá sjónarhorni innanbúðarmanna. 

Hverjar sem ástæður þess að hann fái að leka upplýsingum með þessum hætti eru, þá er hitt óumdeilt, að Lindsey hefur komið fram með geðveika spádóma, sem rættust svo á fáeinum mánuðum.  Til dæmis spáði hann því að verð á olíutunnu myndi falla niður í og undir 60 dollara, þegar verðið var í hæstu hæðum og engin breyting var sjáanleg á því.  Þá sagði hann að verðið yrði þvingað niður, og það væri alveg sama hvað OPEC eða aðrir fákeppnisþrjótar myndu rembast, það yrði bara tappað af “ólistuðum” olíulindum til að flæða nægu magni inn á markaðinn þannig að verðið félli.  Hvers vegna?  Það var til að olíuríkin myndu nú ekki missa af heimskreppunni, engin þjóð á að verða rík á þessum tímum, við erum öll á leið niður á bandingjastigið í nýju lénsríki á heimsvísu.

Síðastliðinn fimmtudag var Lindsey gestur í þætti Alex Jones og dró þar upp heldur svarta mynd af ástandinu í Mexíkóflóa.

Þetta kom helst fram í viðtalinu:

  • Olíulekinn var ekki viljandi, en verður notaður til að fleyta dagskrá þeirri sem LW hafði áður lýst, sjá kryppugrein sem tengd er hér að neðan
  • Rússar hafa átt við djúpboranir eins og þessi pallur stundaði, en vestræn olíufyrirtæki hafa ekki átt við þær áður
  • Rússar hafa alltaf fiktað við þetta á landi, þar sem auðveldara er að hemja slys
  • Á miklu dýpi er gríðarlegt magn af olíu, sem virðist myndast í einhverskonar ferli sem tengist möttli jarðar.  Þessi olía er sem sé ekki mynduð af rotnandi trjágróðri, heldur kemur “að innan” og fyllir á eldri olíulindir
  • Þeir boruðu inn í slíka olíuæð, og þrýstingurinn er gríðarlegur, þúsundir punda á fertommu.  Engir lokar eða hefðbundin olíuvinnslutæki ráða við að hemja lekann
  • Lekinn er ekki lengur bundinn við eina rifu, heldur hefur sprungið út frá henni og olía gusast upp úr rifum langt frá upphaflega lekanum
  • Olíumagnið sem lekur er miklu, miklu meira en sagt er
  • Menn gæla við hugmyndir um að reyna að loka rifunni með kjarnorkusprengju, en slíkt er áhættusamt, því rifan gæti jafnvel stækkað
  • Til að mjólka ástandið sem best, þá er lítið gert í að hemja afleiðingarnar.  Ekki er kveikt í olíunni, örverum ekki sleppt í hana, girðingum haldið úr leik og hermenn látnir gera tímafrekar og gagnslausar vörutalningar á búnaði, frekar en að koma honum tímanlega í notkun
  • BP hefur nokkurs konar alræðisvald á svæðinu, hindrar fjölmiðlun, hindrar fólk og fylki í að verja strendur sínar, talað um starfsmenn þeirra sem “fanta” (thugs)
  • Hreinsistarf lítið, aðallega sett á svið fyrir myndavélar fjölmiðla, sem þó hafa lítinn aðgang að svæðinu
  • Með olíunni koma upp margskonar eiturefni, sem eru að vísu eldfim, en ekki er kveikt í þeim, fremur en olíunni. 
  • Auk þess notar BP baneitruð olíueyðingarefni, sem eru mun eitraðri en olían sjálf, sem brotnar niður í umhverfinu af sjálfu sér
  • Þessi efni öll komast auðveldar í gasástand og gufa upp í heitum flóanum,
  • Efnin valda ófrjósemi og allskyns vandamálum hjá fólki
  • Líkur á að fólk verði flutt á brott með herlögum þegar ástandið hefur grafið aðeins betur um sig (problem-reaction-solution bragðið)
  • Betra fyrir fólk að flýja strax, þá ræður það áfangastaðnum, en lendir ekki í flóttamannabúðum FEMA
  • Með sumri og aukinni uppgufun, og væntanlegum fellibyljum, þá eru gríðarleg svæði í hættu frá loftmengun þessara eiturefna
  • Vegna neyðarástandsins munu áætlanir Óbama ganga smurt í gegn um kerfið, skattar og reglugerðir sem strönduðu í Climategate og Kaupmannahöfn.  Óbama og / eða aðrir gæðingar gætu þó þurft að “falla á sverðið” vegna þessa, en “liðið” hagnast í heild (alltaf hægt að fá nýjar leikbrúður í Hvíta húsið)
  • Gríðarlegar eldsneytishækkanir, Lindsey spáir tvöföldun á verði frá dælum í Bandaríkjunum, farið snemma í sumarfrí og njótið þess, því ferðalög verða lúxus sem fólk mun ekki veita sér í ómældu magni

Hér er viðtalið í heild sinni

http://www.youtube.com/view_play_list?p=1CE838F652778911

Fyrirlestur Lindsey Williams um The Energy Non-Crisis”

http://video.google.com/videoplay?docid=3340274697167011147#

Spár um Messías djöfulsins á áætlun
Spár um Messías djöfulsins á áætlun
Ekki maður, heldur tíðarandi sem hófst upp úr 1966.

PD mynd verkfræðideild bandaríkjahers - Olíulindir í Kuwait brenna
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments