Hinn 87 ára gamli Lyndon LaRouche hélt fyrirlestur og svaraði fjölmörgum spurningum í meira en þriggja og hálfs klukkutíma vefútsendingu frá Washington í gær sem bar yfirskriftina “Ides of March”, sem er vísun í herhátíð í Rómarveldi sem haldin var 15 dag mars, maí, júlí og október. Ides of March er þó sértaklega tengt morðinu á Júlíusi Sesar, árið 44 fyrir krist. Þess verður að geta að Óbama er 44. forseti Bandaríkjanna og fyrirlesturinn er haldinn þann 13. mars 2010.
Aðal efni ávarpsins var ákall LaRouche til landa sinna um að koma Óbama frá. Hann setti það raunar fram sem óhjálkvæmilegan feril, að Óbama yrði að fara frá, þrýstingur væri að vaxa og hver dagur sem hann heldur áfram sem forseti séu í raun hamfarir fyrir Bandaríkin.
LaRouche fór yfir það ferli að koma forseta frá, sem á ensku er nefnt ‘impeach’, eða kannski vantrausttillaga. Hann sagði að slíkt gerist ekki með þeim formlega hætti að kosið sé um vantrausttillögu, heldur verði Obama gerð grein fyrir því að hann geti ekki setið. Eins og Nixon fór frá þegar ljóst var að honum væri ekki sætt á forsetastóli lengur. Hann fór ekki leynt með þá skoðun sína að hann teldi Óbama ekki endast út apríl.
Næst vék hann máli sínu að hruni efnahagskerfisins og grotnun bandarísks efnahagslífs, sem hann þakkar áratuga langri setu leppa breska heimsveldisins á valdastólum Bandaríkjanna, þar sem Obama sé sá síðasti og sá sem ætlar að klára verkið.
Hann segir efnahagskerfi heimsins hanga á bláþræði og ef það steypist fram af brúninni, þá sé óvíst að það jafni sig nokkurn tíma aftur. Hann kallaði eftir aðgerðum gegn klíku alþjóðabankamanna undir stjórn Rothschild veldisins, sjá mynd.
En hann talaði einnig um hvernig hægt sé að endurvekja efnahagslífið í Bandaríkjunum, og ekki verður annað séð en það gildi sæmilega fyrir Ísland líka. Hann vill byggja upp innviði á vegum ríkisins, vantsveitur, orkufyrirtæki, lestarsamgöngur, heilbrigðiskerfi og NASA geimvísindastofnuninni vill hann bjarga, en Obama vill hana feiga.
Þessi áætlun LaRouche er ekki ósvipuð aðgerðaáætlun Tarpley fyrir Ísland, sem hann kynnti fyrir okkur í október síðastliðinn. Hann vildi að við byggðum upp framleiðslu og innviði. Hátækni segullestir tengi landshlutana saman. Hann vildi einnig að við upphugsum einhverja hátækninýung sem gæti orðið okkar Nokia, okkar sérstaða.
NASA vinkilinn var afar áhugaverður. Hann vill meina að hver dollar sem eytt er í geimferðaáætlunina skili sér margfalt til baka í aukinni framleiðslu og betri tækni sem verður tiltæk. Hann vísar á bug notkun einfaldrar stærðfræði þegar stefna ríkja er mótuð. Hefði ekki verið betra fyrir þá sem söfnuðu peningafjöllum í ‘góðærinu’ að nota þessa peninga í innviði landsins, heldur en að horfa á þá gufa upp í sökkvandi verðgildi gjaldmiðla og afleiðuhelvíti alþjóðlegu bankamannanna? Auk þess er fullt af fólki atvinnulaust og stefnulaust í dag. Krafta þess fólks vill hann nýta.
Stemmningin í heiminum er neikvæð. Það er vegna þess að öll heimssýn okkar, varpað til okkar frá litla lúsifer (sjónvarpinu) byggir á samdrætti. Við sjáum ekki framtíð með meiri tækni og betri lifistandard. Okkur er ætlað að halda í við barneignir, draga úr svokölluðum ‘útblæstri’, hætta að nota auðlindir jarðar og börnin okkar fá sífellt lélegri menntun. Það stefnir sem sé í að venjulegi maðurinn sé bara þræll og helst hugsanalaus geldingur.
Í stað þess að sjá betri framtíð mannkyns með nýlendum á öðrum hnöttum og framförum með þeirri sköpunargleði sem hverjum einstaklingi er blásið í brjóst með sínum fyrsta andardrætti við komuna úr móðurkviði.
Þessi öldungur hafði meiri kraft og meiri sýn heldur en nokkur þeirra íslensku ‘snillinga’ sem hafa unnið þjóð sinni ómælt tjón á síðustu árum.
Ég mæli með þessum fyrirlestri fyrir þá sem hafa tvo tíma eða svo aflögu.
http://www.larouchepac.com/webcasts/20100313.html
Takk fyrir enn eina góða grein Gullvagn.
Svá góðr
1
Leiðrétting:
Larouche var sýknaður! Bush eldri með aðstoð CIA komu á hann falssök um skattsvik. Sem hann var sýknaður af, með öllu.
Þeim lá svo mikið á að ná Larouche úr umferð, því hann vissi allt um
nasista afkvæmin Bush eldri og yngri. Afkomendur Prescott Bush, sem var einn af aðal stuðningmönnum á Wall Street við Þýska Nasista flokkin 1933.
Larouche er aðal andstæðingur Wall Street og City of London banka bófanna, og séstakur óvinur lygarans Tony Blair.
Aflið ykkur upplýsinga áður en fullyrðingar fljúga.
Horfið frekar á web castið og lærið og myndið ykkur skoðun.
http://www.larouchepac.com/webcasts/20100313.html
Svá góðr
3
Er varla verri þó hann svíki undan skatti?
Svá góðr
0
Larouche fékk 15 ára fangelsi fyrir skattsvik og fleira. Enginn örviti myndi vitna í hann eða skrifa um það sem hann segir.
Svá góðr
0
Flott Grein !
Meiriháttar, vona að sem flestir Íslendingar lesi og fari að hugsa.
Sérstaklega á ég við að Pólitísku dólgarnir, hætti sínu valdabrölti,
og fari að taka mið af því sem er að gerast í hinum stóra heimi.
Skattborgarar Íslands eiga ekki að borga skuldir banka bófanna,
þeir Íslensku stjórnmálamenn sem það vilja eru að ganga erinda Rothschild veldisins og Breska heimsveldisins i City of London.
Og eru þar með orðnir Landráðamenn í mínum huga.
Hér er áhugaverð grein: Rothschilds Run British Intelligence Operation into Russia through JRN and Diligence http://www.larouchepac.com/node/13871
Downloadið webcastinu 13 March 2010. http://www.larouchepac.com/webcasts/20100313.html og horfið á það nokkrum sinnum til að sjá og skilja raunveruleikann í heimsmálunum.
Svá góðr
2