Ókeypis orka, vantrúarmenn í kreppu

Þessum þarf að stinga í samband, en flottur samt

Fyrir nokkru sögðum við frá vísindamanninum Ismael Aviso sem virðist geta framleitt orku úr lausu lofti.

Hann fór með tækni sína til Orkustofnunar Filipseyja sem tók hana í prófun samkvæmt sínum eigin forsemdum og fyrirmælum og þar fékkst það staðfest að orkunýting rafbílsins sem tækninni hafði verið komið fyrir í, var 133%, það er að segja, hann framleiddi 33% meira rafmagn heldur en að hann notaði.

Með öðrum orðum, þennan bíl þarf aldrei að hlaða, nema að hann hafi staðið svo lengi óhreyfður að rafgeymirinn sé alveg tómur.

Það fékkst allt stimplað og staðfest af Orkustofnun Filipseyja.

Höfuð vantrúarmanna eiga erfitt með að vinna úr þessum gögnum.  Þeirra heimsmynd gerir ekki ráð fyrir að hægt sé að framleiða orku úr lausu lofti.  “Allir vita” að það þarf að stinga raftækjum í samband við orkugjafa sem rekinn er af stórfyrirtækjum, og greiða þeim afgjöld.  Eða framleiða orkuna sjálfur með gamaldags dýnamó tækni.

Ekki bætir úr skák að opinber stofnun skuli staðfesta búnaðinn.  Opinberar yfirlýsingar frá opinberum ríkisstofnunum eru eins og orð guðs greypt í stein fyrir þá trúlausu. 

Nú eru þeir í mikilli kreppu.  Þeir verða að velja milli þess að samþykkja nýja galdratækni sem er opinbera staðhæfingin, eða gerast samsæriskenningasmiðir.  Því samkvæmt þeirra bókum eru allir þeir sem efast um opinberar skýringar samsæriskenningasmiðir og … ja ég held ég ýki ekki skoðanir vantrúarmanna með því að bæta við “bjánar”.

Það hefur verið mikið að gera hjá vísindamanninum Aviso, hann hefur íhugað að færa uppgötvanir sínar yfir í almannaeign, því hann þekkir söguna um það hvernig ýmis sniðug tækni sem gæti sparað fólki pening hefur verið keypt upp af stórfyrirtækjunum til þess eins að stinga undir stól, eða helst, grafa til frambúðar í svartholi einokunarsinna.

Eitthvað er hann að fikra sig í þá átt, því nú hafa birst frá honum ný myndbönd þar sem hann útskýrir tæknina og virkni hennar.

Hér er tengill á textan og myndbönd sem skýra hugverkið.  Þetta virðist heldur meira prógramm heldur en hægt er að græja heima í skúr, svo við bíðum bara spennt eftir að geta pantað tilbúna rafmótora með 133% orkunýtingu.

Aviso’s Free Energy Circuit Revealed

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments