
Rólegt í Reykjanesbæ
Í fréttum RÚV frá í gær má sjá forseta lýðveldisins setja ofan í við fréttamann fyrir að spyrja nærgöngulra spurninga á kjörstað.
“Eins og þú veist, þá er nú ekki heimilt samkvæmt íslenskum lögum að ræða málefni á kjörstað,” sagði Ólafur Ragnar Grímsson, frammi á gangi eftir atkvæðagreiðsluna. Spurningin var ekki einu sinni “Hvað kaustu,” heldur “Varstu lengi hugsi.” Ekki er annað hægt að sjá en að forsetinn hafi alveg rétt fyrir sér, um túlkun lagana, en hvort fréttamennirnir séu upplýstir um kosningalög frekar en annað, það er aftur stórvafasamt.
Hér er sá hluti kosningalaga sem Ólafur vísar í:
Hvað er óleyfilegur kosningaáróður og kosningaspjöll?
Úr lögum nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis, XX kafli, 117. gr.
2. grein: Að reyna að hafa áhrif á atkvæðagreiðslu, hvort heldur er með ræðuhöldum, prentuðum eða skriflegum ávörpum eða auglýsingum, með því að bera eða hafa uppi merki stjórnmálasamtaka eða önnur auðkenni er tengjast hinum ólíku sjónarmiðum sem kosið er um á sjálfum kjörstaðnum, þ.e. í kjörfundarstofu, kjörklefa eða annars staðar í eða á þeim húsakynnum þar sem kosning fer fram, svo og í næsta nágrenni.
Á vef Víkurfrétta má sjá dæmi um þverbrotin kosningalög og áberandi hlutdræga fréttamennsku, en í kjördæmi þar sem 3 af hverjum fjórum sögðu nei, segja nánast allir já við ólöglegri hnýsni fréttastjóra Víkurfrétta, Hilmars Braga Bárðarsonar, þar á meðal starfsmaður í kjörstjórn og foringi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ. Hilmar Bragi spyr kjósendur á kjördag, frammi á gangi í Heiðarskóla sem er einn af þremur kjörstöðum í Reykjanesbæ.
Kjósandi upplýsir fréttastjórann um að ekki megi ræða málefni á kjörstað, en fréttastjórinn virðist skýla sér á bak við það að lögin eru um kosningar til alþingis, en ekki um þjóðaratkvæði. Á kosningavef innanríkisráðuneytisins eru þessi lög þó birt í samhengi við þjóðaratkvæðagreiðslur, eins og sjá má á mynd hér að neðan.

http://www.vf.is/VefTV/48215/default.aspx
http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4547308/2011/04/09/1/

Comments
Powered by Facebook Comments