Margir halda að ESB sé samstarf þjóða. Vissulega er það rétt eða a.m.k. var það rétt. En kjarnin í ESB snýst ekkert um samstarf eða þá lýðræði. Framkvæmdastjórnin er t.d. ekki kosin beint af þegnum sambandsins. Þingið er djók sem passar ekki upp á einstaka lönd heldur upp á sérhagsmuni valdablokka innan þingsins. Það er nánast valdalaust og tími þingmanna fer í atkvæðagreiðslur um hluti sem skipta ekki máli t.d. fituinnihald jógúrts.
Einn frægasti andófsmaður Sovétríkjanna, Vladimir Bukovsky, segir að ESB sé hið nýja Sovét. Að vísu í mildaðri útgáfu, ennþá! Í viðtali við Paul Belien hellir hann úr viskubrunni sínum og segir m.a. eftirfarandi:
“Ég er að vísa í skipulag, hugmyndafræði, plön, stefnuna, óhjákvæmilega stækkun, eyðingu þjóðríkja, sem var tilgangur Sovétríkjanna á sínum tíma. Það eru fæstir sem skilja þetta. Vita bara ekkert í sinn haus. En við vitum þetta því við vorum aldir upp í Sovétríkjunum og þurftum að læra sovésku hugmyndafræðina á öllum skólastigum.
Tilgangur Sovétríkjanna var að búa til nýtt afl í heimsögunni, sovéska borgara, út um allan heim. Sama gildir um ESB í dag. Þeir eru að reyna að búa til eina þjóð sem nefnist “Evrópubúar”, hvað sem það nú þýðir.
Samkvæmt kenningum kommúnismans og sósíalískri hugmyndafræði á ríkið, þjóðríkið, að hverfa. Í Rússlandi var það alveg þveröfugt. Í stað þess að hverfa eða veslast upp þá urðu Sovétríkin mjög öflugt ríki. En þjóðirnar urðu að engu. “
Paul Belien bendir honum síðan á að lönd Evrópu hafi gengið af fúsum og frjálsum vilja í ESB. Því svarar Bukovsky eftirfarandi:
“Nei, þau gerðu það ekki. Sjáðu bara Danmörku sem kaus gegn Maastricht samningnum, tvisvar! Sjáðu Írland sem kaus gegn Nice samningnum. Skoðaðu önnur stór lönd, þau eru undir rosalegri pressu, nánast fjárkúgun. Sviss var þvingað til að kjósa fimm sinnum um aðild og hafnaði því í öll skiptin. Hvað gerist í það sjötta? Alltaf sama hluturinn. Það er verið að plata fávita. Fólk er látið kjósa þangað til útkoman er rétt. Svo er hætt að kjósa. Af hverju að stoppa. Endilega haldið áfram að kjósa.”
“Síðan held ég að ESB eins og Sovétríkin verði aldrei lýðræðislegt. Gorbasjov reyndi á sínum tíma en það sprakk framan í hann. Svona óskapnaður þolir ekki lýðræði.”

ESB er skrímsli sem gengur vel að plata fávita!
Svá góðr
6