Smiley face
Mynd CC Mikael Colville-Andersen

Ófrjótt mannkyn stefnir í hrun

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Fólksfjöldi

Mynd CC Mikael Colville-Andersen

Þvert á söng báknmiðlanna um offjölgun og ágang mannkyns á jörðina, þá gæti mannkynið orðið í útrýmingarhættu innan fárra kynslóða.

Ófrjósemi viðrist vera ein af hliðarverkunum þess að borða erfðabreyttar lífverur.  Það hefur komið í ljós bæði óvart og í rannsóknum sem sérstaklega athuga þann þátt. 

Í Kryppugrein frá 2010 segir:

Ef vísindamenn frá Mars myndu rannsaka tímgunarkerfi karlmanna, þá myndu þeir sennilega komast að þeirri niðurstöðu að mannkyn muni deyja út, og það fljótlega.  Í samanburði við önnur spendýr þá framleiðum við tiltölulega fáar nothæfar sáðfrumur, sáðfrumur sem geta synt nógu langt og svo frjóvgað egg.

Allt að einn af hverjum fimm hraustum, ungum mönnum á aldrinum 18-25 framleiða afbrigðilega fáar sáðfrumur.  Það sæði sem þeir framleiða er oft af lágum gæðum.  Raunar eru aðeins 5-15 prósent af sáðfrumum þeirra að jafnaði nógu góðar til að teljast “eðlilegar” samkvæmt stöðlum WHO, og þetta eru samt ungir og heilsuhraustir karlmenn.  Í samanburði eru 90 prósent af sáðfrumum nauta eða jafnvel rotta eðlilegar. 

Í annari grein frá í fyrra er talað um hvernig dýr sem fóðruð voru á erfðabreyttum maís og erfðabreyttu soja urðu nánast algerlega ófrjó eftir þrjár kynslóðir:

Eftir að hafa fóðrað þrjár kynslóðir hamstra í tvö ár á soyjafæði, þá voru niðurstöðurnar hrikalegar þegar litið er til þeirra sem voru á erfðabreyttu soyjafóðri, sérstaklega þann hóp sem fékk mest af erfðabreytta fóðrinu.  Í þriðju kynslóð voru flestir soyjafóðraðir hamstrar orðnir ófjrjóir.  Þeir uxu hægt og dánartíðni unga var há.

Þessar upplýsingar eru allar aðgengilegar og engin leyndarmál eða samsæriskenningar.  Það eru bara “tilviljanir” sem valda því að báknfjölmiðlar hafa engan áhuga á að fjalla um þessa vá, né virðast “grænu” skriffinnastofnanirnar hjá Sameinuðu þjóðunum og víðar hafa verulegar áhyggjur af yfirvorfandi hruni á stofni mannkynsins.  Þvert á móti er verið að fjarlægja allar hömlur af framleiðslu erfðabreyttra matjurta og allskyns óguðlegra tilrauna með samblöndun á mismunandi tegundum með aðstoð erfðatækninnar.

Tengt:

Erfðabreytt: Eitur, ófrjósemi og dauði

Úbbs: Erfðabreytt soya veldur ófrjósemi

Mannkyn í útrýmingarhættu vegna lélegs sæðis

Eftirlitsmyndavélar við leiðsagnarsteina

Lyklar:,

Gullvagninn

Miðaldra fjölskyldumaður sem sinnir jaðarblaðamennsku í frístundum. Hóf ritferilinn á moggablogginu í ágúst 2007, en skipti yfir á Kryppu þegar vefritið var stofað í janúar 2010.

Skrípó