Nú er það að skýrast. Koltvísýringur er ekki drullan í loftinu, svifrikið, sýnilega mengunin sem fólk vill auðvitað losna við og er því jákvætt fyrir allskyns reglugerðum sem sagt er að dragi úr “útblæstri koltvísýrings”, eða eins og það er oft stytt, “dragi úr útblæstri”.
En málið er að Co2 er ekki mengun. Agnir í loftinu eru af öðru tagi, og loftslagsbrjálæðingarnir vilja auka þær, ekki minnka. Niðurstaðan verður því: Meiri mengun og meiri skattar, gleði fyrir Al Gore, alþjóðabankamafíuna og vitleysingana sem draga taum þeirra, óafvitandi, nytsamir kjánar. Tár og tap fyrir almenning.

Comments
Powered by Facebook Comments