Nú í ágúst taka gildi nýjar reglur um fjármagnsfluttninga og bankainnistæður milli Evrópu og Bandaríkjanna. Eftir að hafa hafnað lögunum í febrúar ákvað þingið að samþykkja lögin með smá breytingum og sýna þannig nýfengið vald sitt með Lisssbon sáttmálanum.
Nýju lögin voru samþykkt með miklum meirihluta og taka gildi þann 1. ágúst. Helstu breytingarnar eru að ESB fær að hafa fulltrúa í Bandaríkjunum til að fylgjast með aðgerðum bandaríska fjármálaráðuneytisinis.
Samkvæmt fréttaveitunni EurActiv skaut forseti Evrópuþingsins föstum skotum að aðildarlöndum sambandins og sagði að þau þyrfti nú að taka fullt tillit til þingins. Eða eiga hættu á svipuðu átökum um mál í framtíðinni.
En ESB þingið hafnaði gömlu lögunum og vildi fá eigin stofnun til að fylgjast sérstaklega með peningafærslum borgara sambandins. Að sögn til að tryggja persónuvernd og einstaklingsfrelsi.
Nýju lögin kveða á um að vinna skuli hafin á uppsetningu á evrópska kerfinu sem fyrst.
Er bankinn þinn búinn að skanna ökuskirteinið þitt eða vegabréf?

Comments
Powered by Facebook Comments