Óbama vill “innkalla” internetið

Daniel Ellsberg, sá sem lak Pentagon pappírunum sem birtir voru árið 1971, segir stjórn Óbama búa sig undir alræðislega innköllun á upplýsingum sem lekið hefur verið út á internetið og geta því verið til á þúsundum tölva um allan heim.

Stjórnvöld hóta lögsóknum gegn þeim sem skrifa um, lesa eða hafa undir höndum þessi gögn, nota hugtök og frasa, eins og “skila gögnunum”, sem er fáránlegt, þegar búið er að birta þau á internetinu.  Þessi orð eru úr “njónsalöggjöfinni” sem reynt var að nota á Ellisberg, eftir að hann lak Pentagon pappírunum, 7.000 ljósrituðum leynisíðum varðandi Víetnam stríðið.

Þessi löggjöf var ekki sett til að lögbinda leyniupplýsingar á vegum stjórnvalda, enda er slíkt óamerískt, en Óbama forseti hefur þó skakað þessari löggjöf eins oft og allir fyrrum forsetar samanlagt, gegn þeim sem leka upplýsingum, eða þrisvar alls.

Ellsberg segist handviss um að friðartal Óbama sé tóm tjara og að hann ætli sér alls ekki að kalla herinn frá Írak.

Mynd CC The U.S. Army
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments