
Kryppan kemur til móts við atvinnuleysi, skatta og kreppu með geggjuðum hugmyndum að auðveldum auðæfum.
Vísindamenn á vegum föðurstofnunar internetsins, DARPA, hafa unnið sleitulaust að framleiðslu á blóði með líftækniaðferðum. Þeir geta nú framleitt 20 einingar af blóði úr einu stykki naflastreng og dálítilli klessu af erfðabreyttum dýra og plöntumassa. Einingin kostar 5.000 dollara, en með fjöldaframleiðslu telja þeir að kostnaði megi ná niður í um þúsund dollara á einingu.
Þessir tilburðir eru vegna þeirrar skyndilegu þarfar á blóði sem skapast á vígvellinum, þar sem við meðal aðgerð á særðum hermanni er þörf á sex einingum af blóði.
Það er ekki beint geðslegt að fá slíka blóðgjöf, og ekki ódýrt fyrir herinn. En það er bara skortur á blóðvarpi, Blood on Demand.
Hér er tækifæri fyrir okkur að vinna inn aukapening með íslensku hugviti.
Samkvæmt upplýsingum blóðbankans má blóðgjafi gefa blóð með 3ja til 4ra mánaða millibili. Alvöru blóð, fullrannsakað og vottað af íslenskum vísindamönnum, er mun gæfulegri kostur en vinnsluvökvi úr erfðabreyttum lífmassa. Því er ekki óeðlilegt að sama verð eða betra fáist fyrir slíka vöru. Við erum nú bara 300.000 og getum ekki gefið daglega, því er mikilvægt að markaðsetja vöruna í lúxusflokki. Fyrir foringjana, meðan óbreyttir breytast í erfðabreytt skrímsli, þá halda foringjarnir í upprunalegt útlit og innræti.
Með 5.000 dollara á einingu er ekki óeðlilegt að gjafinn fái 2.000 dollara í sinn hlut. Það eru bara heilar 250.000 krónur á gjöf, eða milljón aukareitis á ári.
Ég er viss um að íslenskir vísindamenn og almannatengslafulltrúar geta með vöruþróun gert íslenskum einstaklingum á blóðakrinum kleyft að gefa blóð oftar. Auðveldlega tvisvar sinnum oftar, kannski í hverjum mánuði. Hvers vegna ekki? Jafnvel má hugsa sér fulla vinnu við blóðgjafir, þar sem fólk fer í líkamsræt 1 klukkustund á dag, étur slátur og járnpillur í hvert mál og fer í blóðmjaltir einu sinni í viku.
Íslensku bankamennirnir þurfa ekki að örvætna þó störfin þeirra sem skiluðu milljón á mánuði séu að þorna upp. Nýjar dyr opnast fyrir duglega púka. Starf á blóðakrinum stuðlar að meiri og blóðugri hernaði og skilar milljón á mánuði í laun.
Scientists develop ‘fake’ genetically-engineered blood for use on the battlefield
Mynd: BLOOD CELLS © Jesse-lee Lang | Dreamstime.com

Comments
Powered by Facebook Comments