
Hið austur-þýska Securitas sá um öryggi á Bilderberg. Mynd (C) Alex Jones, Infowars.com
Í kjölfar árlegs Bilderberg fundar í St. Moritz um helgina þá bætist skyndilega nýr umsækjandi í hópinn um stöðu Stráss-Kahns hjá IMF.
Stanley Fischer er lénsherra Ísraelsbanka, mikið uppáhald Bilderberghópsins og hefur margsinnis sótt Bilderberg fundi. Umsókn hans barst tæknilega séð of seint, en fyrir tilviljun átti IMF í tölvuvandræðum vegna árása hakkara, og því var umsóknarfresturinn framlengdur, svona rétt framyfir Bilderberg fund.
Fischer er ríkisborgari bæði Ísrael og Bandaríkjanna, hann er auðvitað Bilderbergari, en auk þess einnig meðlimur í Council of Foreign Relations (CFR) og Þríhliðanefndinni (Trilateral Commission).
Hann verður nú að teljast sterkur umsækjandi, þó hann bætist í slaginn á síðustu stundu.
Vald Bilderberg hópsins til að skipa í valdamiklar stöður er hvergi opinberlega viðurkennt, en talverðar tilviljanir benda til þess að það sé raunverulegt. Síðasta afrek þeirra í þessum geira er talið vera skipun blauttusku Van Rumpoy sem forseta Evrópusambandsins, en Rumpoy, sem sagður er hafa sjarma á við skítuga borðtusku, var algert núll og nix þar til hann blómstraði skyndilega í topp stöðu, aðeins nokkrum dögum eftir að hafa sótt Bilderberg fund.
Prominent Bilderberg Insider Injected Into IMF Race At Last Minute
Tengt:

Comments
Powered by Facebook Comments