Nýfátækum fjölgar og USA verður vanþróað

Bandaríkin eru á barmi þess að síga niður í hóp með þriðja heims ríkjum, með sína hrikalegu skuldabagga, aukið atvinnuleysi og atvinnulíf í upplausn.

Meðal þeirra “rauðu ljósa” í mælaborði eftirlitsstofnana eru aukið atvinnuleysi og fátækt.

Samkvæmt Spiegel Online eiga Bandaríkin nú við nýtt fyrirbæri að etja, “nýfátæka”.

Í Kalifornísku borginni Ventura, sem er lúxus ferðamannaborg, eru um 20 prósent af íbúum í hættu á að verða heimilislausir.

Þeir sem áður voru ríkir, en misstu heimili sín, neyðast nú til að gista í lúxusbifreiðum sínum, sem þeir leggja í útkimum bæjarins, segir William Finley, kafteinn hjálpræðishersins í bænum.

Hann bætir við að á síðustu mánuðum hafi fjöldi þeirra sem nýta sér ókeypis máltíðir hjálpræðishersins tvöfaldast.  Margir koma á BMW bifreiðum sínum með hatt í hendi.

Annað merki um að hinir svokölluðu dýrðardagar Bandaríkjanna séu að baki er hvarf millistéttarinnar.

Á síðustu árum hefur bilið milli hinna ríku og fátæku aukist með sláandi hraða, og kerfisbundið hreinsað upp miðstéttina í Bandaríkjunum.

Skipting tekna í Bandaríkjunum hefur náð því stigi að aðeins 1 prósent Bandaríkjamanna á nú allt að 37 prósent af þjóðarauðnum.

Það þýðir að ef hinn dæmigerði forstjóri þénaði 30 sinnum meira en venjulegur verkamaður árið 1950, þá myndi hann eiga 300 sinnum meiri eignir í dag.

Á sama tíma er í árlegri skýrslu landbúnaðarráðuneytisins lögð áhersla á að um 50 milljónir Bandaríkjamanna hafi ekki átt efni á nógum mat til að halda sér heilbrigðum á einhverjum tímapunktum árið 2009.

Það er einnig athyglisvert að einn af átta fullorðnum Bandaríkjamönnum og eitt af fjórum börnum þiggja matarmiða sér til framfærslu.  Þetta eru ótrúlegar tölur hjá ríkustu þjóð í heimi, skrifar Spiegel.

Enn sem komið er hafa stjórnmálamenn brugðist þegar kemur að lausnum í þessari vaxandi krísu.

“Ljósin eru að slokkna um alla Ameríku,” skrifaði nóbelsverðlaunahafinn Paul Krugman í síðasta mánuði.  Það er vegna þess að margir bandarískir borgarar geta ekki lengur eytt peningum, því þeir eiga engan sparnað.

Hús þeirra hafa misst helming verðgildi síns; þau eru ekki lengur gild sem veð fyrir lágvaxtalánum; fólkið fær minni tekjur en áður, eða er atvinnulaust.  Það dregur úr eða þurrkar upp skatttekjur ríkisins af þeim.

Því eru mörg ríki og bæjarfélög í vandræðum vegna fjárlagahalla.  Á Hawaii eru skólar lokaðir suma föstudaga til að spara ríkinu fé.  Sýsla í Georgíu hefur hætt að reka strætisvagnakerfi og í Colorado Springs, 380.000 manna borg, er slökkt á þriðjungi ljósastaura til að spara rafmagn.

Það er staðreynd að Bandaríkin, sem sigla nú í köldu lofti gríðarlegs skuldavanda upp á 90% af þjóðarframleiðslu, er í hættu á að sigla inn í félagslega ísöld, verri en nokkuð sem sést hefur síðan í kreppunni miklu.

Þetta eru ástæður þess að mikilsmetinn dálkahöfundur á netinu, Arianna Huffington, varaði við með nánast heimsendalegum hætti að “Bandaríkin séu í hættu á að verða þriðja heims ríki.”

FF/HRF – PressTV

US becoming a Third World country?

Mynd CC MUGS
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments