Sarkozy vill nota forsetu Frakka í G20 á næsta ári til að setja á fót nýtt alþjóðlegt fjármálakerfi. Hann segir að Bandaríkjadollar eigi ekki lengur að vera aðal alþjóðlega seðlabankamyntin.
Í útþaninni og háleitri ræðu fyrir leiðtoga stjórnmála og viðskipta lýsti hann stuðningi við skatta á fjármálakerfi og færslur (Tobin skatt). Þann ágóða á að nota til siðferðilegra (!!!) háleitra verkefna, svo sem til að berjast gegn veðrinu (veðurfarsbreytingar) og fjármögnun nýrrar stofnunar, jafn hrikalegri og WTO, World Environment Organization.
Sarkozy vill einnig koma á byltingu í alþjóðlegum reglugerðum, flóðbylgju af nýjum reglum sem myndu gera almenning um allan heim jafn bundin í heilbrigðismálum, atvinnumálum og umhverfisreglugerðum eins og hann er af viðskiptareglum.
Í slíkri útópíu væri ekkert (lagalegt) vandamál að framkvæma nauðabólusetningar, skylda fólk til að vinna fyrir alþjóðaríkið og hætta öllum óþarfa eins og ferðalögum, notkun á glóðaperum, kjötáti og barneignum án tilskilinna leyfa.
At Davos, Sarkozy Calls for Global Finance Rules
Sarkozy: US Dollar Should No Longer be Primary Reserve Currency
Mynd: Agencia Brasil, Ricardo Stuckert

Comments
Powered by Facebook Comments