Síðbúin jólagjöf frá hófasveininum

Myndband við lag Jay-Z  var frumsýnt á gamlársdag í þættinum “NBC’s New Years Eve” með Carson Daly.  Eftirfarandi er þýtt af vefsíðu hins árvaka borgara, The Vigilant Citizen.

Dulspekitákn hálfneðanmarka í lagi Jay-Z “On to the Next One”
3. janúar 2010

Myndband Jay-Z “On to the Next One” vekur spurningar um tilgang á bak við hrollvekjandi myndmál verksins.  Best er að setja myndmálið í samhengi við dulspekilegan bakgrunn þess.  Í þessari grein lítum við á dulspekilega (occult) þýðingu táknanna sem notuð eru í myndbandinu og setjum í samhengi við vensl Jay-Z við dulspekileg leynifélög.

leadon

Stuttu eftir að Ameríkuálfa kvaddi árið 2009 þá birtist Jay-Z í sjónvarpinu og sagði “On to the Next One”, eða nú tekur næsti við.  Myndbandið var frumsýnt þann 01/01/10, en það útleggst í kabbaliískri númerólógíu sem talan 3 (0 + 1 + 0 + 1 + 1 + 0 = 3).  Talan þrír gegnir einnig mikilvægu hlutverki í myndbandinu.  Útgáfudagurinn inniheldur einnig þrjú eintök af tölustafnum einum, sem tengist stöplunum þremur sem prýðir plötuumslag Jay-Z, The Blueprint 3Þetta er bara lítið dæmi um þá dulspekilegu áru sem umlykur síðustu verkefni Jay-Z.

jay-z_blueprint3_cover-400x4001-e1262533715522

Ég mæli með því að ef þú átt það eftir, þá lesir þú fyrstu grein mína um rapparann sem nefnist Jay-Z’s “Run This Town” and the Occult Connections.  Sú grein tekur á nokkrum af dulspekilegum áhrifavöldum Jay-Z og tengslum hans við leynifélög.  Ég sé fleira fólk undra sig á þeim draugalegu áhrifum sem upp á síðkastið einkenna myndbönd þeirra uppáhalds listamanna.  Þó eitthvað af þessu myndmáli sé aðeins notað til að stuða eða túlka listrænt fegurðarskyn, þá er ákveðinn hluti þess tengdur sérstakri tegund dulspeki sem notuð er af tónlistariðnaðinum.  Eins og sjá má í örðum greinum mínum, þá eru sömu táknin endurtekin í tónlistarmyndböndum, hvort sem þau koma frá Beyonce, Lady Gaga, Rihanna, Jay-Z eða hverjum þeim sem verður ‘valinn’ í framtíðinni.

Sumir þeirra sem lásu fyrri grein mína um Jay-Z vilja meina að táknmálið sem ég lýsti væri bara afleiðing af tilviljunum eða að ég væri að oftúlka myndbandið.  Eftir að hafa séð On to the Next One, þá segja margir þeir sömu nú að hann geri þetta viljandi, táknin séu allt of augljós.  Hvernig breyttist þetta úr því að vera tiljviljun yfir í að vera gert viljandi, táknin séu allt of augljós?  Ég held að þeir sem eru í afneitun muni gera hvað sem er til að hagræða raunveruleikanum.  Listamenn sem komast á toppin hjá tónlistariðnaðinum eru valdir af elítunni (sem oft er nefnd Illuminati).  Vígsla þessara listamanna inn í leynifélögin tryggir þeim velgengni og fjölmiðlun en verðmiðinn er sá að þeir verða strigi fyrir myndmál Illuminati og fórna sjálfum sér.  Ef myndband Jay-Z Run This Town skildi við einhverja áhorfendur í vafa um tengsl við dulspekilegan boðskap, þá ætti On to the Next Oneað afmá allan vafa um tengsl Jay-Z við elítuna og launhelgarnar.  Hér er myndbandið.


Greining myndbandsins

Í myndbandinu við On to the Next Oneer ekki verið að segja mikla sögu og söngtextinn fjallar í raun bara um að Jay-Z montar sig af því að vera skrefi á undan.  Þannig að greiningin mun að mestu beinast að dulspekilegu innihaldi í sumum köflum myndbandsins.  Oft birtist þetta myndmál í skotum sem birtast skemur en eina sekúndu, tækni sem ég kalla ‘hálf-neðanmarka’.  Sum þessara skota virðast eingöngu hafa fagurfræðilegt gildi (nema ég hafi ekki skilið þau) en önnur eru hlaðin dulspekilegri þýðingu.

Heilagur Jay-Z

ontothe1-e1262535727907 

Bakgrunnur senurnar hér að ofan innifelur vandlega staðsett ljós sem mynda geislabaug í kring um höfuð Jay-Z þar sem hann stendur fyrir framan þau.  Geislabaugurinn einkennir heilagar eða kirkjulegar persónur í kristnu myndmáli.

jesushalo1-e1262546055385 

Í samhengi við hið dimma dulspekiþema myndbandsins og vísanir í Baphomet (tákn notað af Church of Satan), þá táknar þessi geislabaugur ekkert gott.  Sá sem vísar í sjálfan sig sem “HOV” eða “Jay-Hova” (vísun í Jehovah, hið rétta nafn Guðs í trúarbrögðum byggðum á Abraham) er sennilega að gefa í skyn að hann sé guð að hætti LeVeyan satanisma, fremur en hinn “svarti guð” sem Five-Percent trúarhópurinn talar um.

ontothe2-e1262547202345 
Stendur fyrir framan geislabaug og myndar táknið
“Horn Djöfulsins”.  Ætli Beyonce sjái þennan geislabaug?

Blóðuga hauskúpan

ontothe31-e1262552345784 

Í myndbandinu má sjá svarta hauskúpu og silfraða hauskúpu sýndar þar sem vökvi lekur niður þær.  Hauskúpa af mönnum hefur alltaf verið eitt af mikilvægustu táknum í dulspekilegum leynifélögum bræðralaga.  Musterisriddararnir (forverar frímúraranna) létu nýja meðlimi drekka vín (sem táknar blóð) úr höfuðkúpu af manni sem hluta af vígsluathöfninni.  Sú venja er enn viðhöfð í sumum deildum frímúrara.

“Musterisriddararnir voru forfallnir aðdáendur og notendur að höfuðskeljum manna af öllum stærðum og efniviði, svo sem höfuðkúpum úr málmi og kristal.  Tengsl Musterisriddaranna við höfuðkúpur manna endurspeglaðist í einu helsta tákni þeirra, Jolly Roger, sem einkennir sjóræningja eða eitur, tákn sem sýnir höfuðkúpu manns men krosslögð lærbein fyrir neðan.  Þetta tákn stendur fyrir notkun Musterisriddaranna á höfuðkúpum við athafnir sínar, sem átrúnaðargoð og jafnvel sem drykkjarílát, auk notkunar í gullgerðarlist, en eitt þrep þeirrar listar var kallað “Dauðihaus” og táknað á dulinn hátt með hauskúpu.

Höfuðskeljar manna voru vinsælar meðal Musterisriddaranna því þær voru taldar gæddar andlegri orku eigenda sinna, auk þess að geisla stöðugt eðli þess fólks út í umhverfi sitt.  Höfuðkúpa Jóhannesar skírara sem Musterisriddararnir fundu í fjórðu krossferðinni í Konstantinóbel var einmitt ein af þessum höfuðkúpum.  Musterisriddararnir héldu því fram að höfuðkúpa Jóhannesar geislaði orku þess sama heilaga anda sem hún gerði þegar hún var áföst líkama Jóhannesar og til að glæða athafnir og vígslur sínar meiri slagkrafti, þá settu þeir hana á sín helgustu altari.  Aðrar höfuðkúpur af helgum kristnum mönnum voru í sérstöku uppáhaldi hjá Musterisriddurunum, ásamt framliðnum stórmeisturum úr reglu þeirra.  Til að magna og leiða þá orku sem streymir frá höfuðkúpunum þá voru þær oft húðaðar velleiðandi málmum svo sem gulli eða silfri og svo settar í orkugefandi helgiskrín sem mótuð voru í helg rúmfræðiform, þar á meðal fjórhegra, átthyrning og pýramíða.  Tilvísanir í höfuðkúpur Musterisriddara hjúpaðar gulli og silfri má finna í mörgum af fyrstu goðsögnunum um hinn heilaga kaleik.”Uppruni

templarskull-e1262553159521 
Höfuðkúpa Musterisriddara

Leifar þessarar iðju má enn finna í athöfnum tengdum 33. gráðu sumra frímúraradeilda, svo sem Cerneau deildarinnar, þar sem viðfang vígslunnar teygar vín úr höfuðkúpu manns.  Hvað finnst þeim um athöfn kristinna, að drekka blóð Krists í messunni?  Það er aftur efni í alveg nýja grein.

ontothe8-e1262556759376
Vísun í táknræna blóðdrykkju í vígsluathöfnum
leynifélaga?
 

Krákan? 

Tveir aukaleikarar í myndbandinu virðast blanda af Krákunni, leikinni af Brandon Lee og Spaugaranum í The Dark Knight, leiknum af Heath Ledger.

 twodudes

crowjoker-e1262554938622

Óhugnarleg staðreynd:  Bæði Heath Leadger og Brandon Lee létu lífið á dularfullan hátt meðan á tökum á þessum hádulspekilegu myndum stóð.  Fórnarathafnir?  Það er aftur efni í nýja grein.

Aðrar tilvísanir í krákur:

ontothe6-e1262556922358 

ontothe7-e1262556959718

Vanvirðing Jesú

Með tilliti til sögu Jay-Z um ekki svo kristnivæna söngtexta, þá er þessi mynd ekkert furðuverk.

ontothe9-e1262557202813 

Baphomet, enn og aftur 

Ef þú hefur lesið aðrar greinar á vefsíðu minni, þá þekkir þú að notkun á því sem minnir á Baphomet er óyggjandi merki um “Illuminati myndband”.  Baphomet er hið hyrnda skurðgoð sem dýrkað var af Musterisriddurunum og síðar notað af Kirkju Kölska.  Tvisvar í myndbandinu eru stutt, nánast neðanmálsskot af Baphomet höfðum sýnd.

Baphomet_small 
Mynd Eliphas Levis af baphomet

ontothe10

ontothe11

Niðurlag 

Strax og myndbandið hafði verið frumsýnt þá fékk ég haug af tölvupósti frá fólki sem hafði séð mörg þeirra tákna sem fjallað var um.  Það staðfestir tvennt:  Í fyrsta lagi, margir eru að verða meðvitaðir um hið illa myndmál sem laumað er í myndbönd og í öðru lagi, myndmálið verður sífellt blygðunarlausara.  Þeir eru ekkert að fela þetta lengur.  Iðnaðurinn VILL afhjúpa sinn innri kjarna.  Ég tel að það sé um tvenns konar “Illuminati listamenn” að ræða:  Hinn viljugi þáttakandi, þar á meðal myndi ég flokka Jay-Z og Lady Gaga, og svo hinir utangátta – Rihanna virðist fullkomið dæmi um þá síðarnefndu.  Jay-Z er snjall í viðskiptum og veit að það selur að vera umdeildur.  Því er það ekkert nema sykurinn – Jay-Z fær þá umfjöllun sem hann sækist eftir og Illuminatus innrætir fjöldann.  En hvað gerist svo þegar elítan hefur lokið sér af með Jay-Z sem flytjanda síns illa táknmáls?  Munu þeir þá segja Nú tekur næsti við?

Upprunaleg grein: The Occult Semi-Subliminals of Jay-Z’s “On to the Next One”

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments