Nú leita þeir í líkamsskorum


Mynd CC Gaspirtz

Þrír lögregluforingjar í Atlanta, Bandaríkjunum, hafa verið settir í launað frí meðan kvartanir um eftirlit þeirra með endaþörmum borgara er kannað og hvíttað.

Niðurlæging flugvallaeftirlitsins færist smám saman út í hið almenna umhverfi.  Ef við látum fara með okkur eins og þræla á einhverjum ákveðnum stöðum, þá er það bara spurning um tíma þangað til farið er með okkur eins og þræla allsstaðar.

Öryggisfulltrúar bandarísku flugvallanna, TSA, eru þegar farnir að keyra prufuverkefni, þar sem þeir setja upp sambærilegt eftirlit eins og á flugvöllunum á rútu og lestarstöðvum.  Einnig eru til færanlegar öryggisstöðvar sem dregnar eru eins og gámar þangað sem þeirra er þörf.  Þær eru með nokkrum leitarhliðum hver, og má setja upp við íþróttaleikvanga, verslunarmiðstöðvar eða bara hvar sem hugumstórum öryggisbrjálæðingum sýnist.

Lögreglan hefur hingað til virt réttindi borgaranna mun betur heldur en TSA, en það kann að vera að breytast.  Þá byrja þeir auðvitað á að brjóta á minnihlutahópi, sem fólk er hálf hrætt við og því vekja brot gegn þeim minna uppnám.

Sjónvarpsmanninum Eric Phillips barst veður af þessari nýju stefnu lögreglunnar og fór að fjalla um málið.  Hann fékk viðtal við farþega í bíl, sem stöðvaður var og bílstjórinn, Shawn Venegas, var látinn stíga út og láta buxurnar síga, úti á almannafæri um miðjan dag, svo lögreglan gæti leitað eiturlyfja.

“Þeir fóru í bakhlutann á honum.  Eins neðarlega og hægt er.  Enginn ætti að þurfa að þola þess háttar leit,” sagði farþeginn, Brian Kidd.  “Ég þurfti að líta undan, því ég gat ekki horft upp á þessa meðferð á vini mínum.”

Hann sagði lögregluna einnig hafa þreifað á sínum einkastöðum í leit að eiturlyfjum.

Niðurlæging og andleg nauð Venegas var slík að hann ákvað að flytja til annars ríkis. 

“Mér finnst eins og ég hafi verið misnotaður og að mér hafi verið nauðgað,” sagði Venegas við Phillips í símaviðtali.

Þvert á tóninn í fréttinni og loforð yfirvalda um að “rannsaka málið”, þá má búast við fleiri fréttum af þessum toga og að smám saman verði þess háttar eftirlit að rútínu hjá lögreglu og öryggisfulltrúum sem smám saman verða hluti af lífi okkar og heimilum.

Tengt:

Ríkið geislar borgara án samþykkis

Öryggi, öryggi… allsstaðar

Anal þjónusta á flugvöllum næst

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments