Nú erum við öll hryðjuverkamennirnir

Gleði í Afganistan, CC DVIDSHUB

Nú er það ljóst að “föðurlandslöggjöfin” snérist um að hafa stjórn á borgurunum, ekki um hryðjuverk, eftir að frumvarp sem galopnar á að forsetinn geti beitt hryðjuverkalögunum á eigin borgara var samþykkt í Bandaríkjunum.

Við vissum áður um “svörtu verkefnin”, sáum þetta í bío, svakaflott, leyniþjónustan fékk verkefni og einhver hetja þar fórnaði sér til að framkvæma kolólögleg verkefni.  Frasinn var, “þú ert einn á báti í þessu, ef þú næst, þá þekkjum við þig ekki.”  Af hverju ekki?  Jú, af því þá þótti það ekki við hæfi siðaðra þjóða að láta útsendara sína fikta í lýðræði annara landa, ráða óþægilega stjórnmála eða blaðamenn af dögum, sprengja upp barnaspítala eða álíka.

Nú er þetta allt flott og fínt, allt fyrir stíðið gegn (með) hryðjuverkum. 

Fleira góðgæti er í vændum:

Möguleikinn á að halda grunuðum í varðhaldi í ótakmarkaðan tíma án dóms og laga

Möguleikinn á að halda fólki áfram, þó dómstóll hafi úrskurðað það saklaust

Möguleikinn á fangaflugi (rendition) á Bandaríkjamönnun (í viðbót við erlenda borgara)

Dauðasveitir fá að veiða Bandaríkjamenn, jafnt sem erlenda borgara

 

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments