National Public Radio í Bandaríkjunum rak Juan Williams, starfsmann til 10 ára, fyrir að segja að hann teldi múslima vera ógn við flugöryggi sitt. Juan er líka starfsmaður Fox News og sem slíkur sagðist hann ekki vera “bigot”. Vegna þess að þetta væri bara hans skoðun og benti síðan á 911 máli sínu til stuðnings.
Ýmsir fjölmiðlar sýna máli hans mikinn skilning og samúð ólíkt því þegar fréttamaður hjá CNN missti út sér í viðtali að CNN væri stjórnað af gyðingum. Það er bannað að segja að gyðingar stjórni fjölmiðlum en í lagi að kalla múslima hættulega hjá Fox og CNN. Sem betur fer er NPR á annari skoðun, a.m.k. að hluta.

Comments
Powered by Facebook Comments