
Nektarskimar á flugvöllum gætu valdið aukningu í tíðni húðkrabbameins segja vísindamenn við Columbia háskóla. Þeir vara við því að geislun frá tækjunum kunni að vera allt að tuttugufallt hærri en upprunalega var talið.
Dr. David Brenner, yfirmaður miðstöðvar Columbiaháskóla í geislarannsóknum varar við því að börn og fólk sem þjáist af litningabreytingum sem gerir það viðkvæmara fyrir geisluninni séu í meiri hættu.
Ef allir þeir 800 milljón farþegar sem nota flugvelli árlega eru skimaðir með röntgen geislun, þá gæti hin litla áhætta sem tengist hverri einstakri skimun margfölduð með þessum mikla fjölda fólks, valdið áhættu á þjóðfélagslegum skala. Þessi áhætta gæti verið veruleg, sagði Brenner.
Rannsóknir Brenners benda til þess að nektarskimarnir muni auka líkur á algengri tegund krabbameins, þekjuvefskrabbamein, sem leggst á höfuð og háls.
“Ef skimun á börnum veldur aukningu á krabbameinum, þá mun það sennilega koma í ljós eftir nokkra áratugi. Það væri skynsamlegt að skima ekki höfuð og háls,” bætti Brenner við.
Svipaðar áhyggjur voru settar fram af í febrúar af hinni áhrifamiklu Þverfaglegu stofnun um geislaöryggismál, en hún varaði við í skýrslu sinni að skimarnir ykju áhættu á krabbameinum og fæðingargöllum, og ætti ekki að nota á vanfærar konur.
Þrátt fyrir staðhæfingar stjórnvalda um að geislum frá þessari tegund gegnumlýsingar sé of lítil til að valda skaða, kemst stofnunin að þeirri niðurstöðu í skýrslu sinni að stjórnvöld leitist við að réttlæta notkun skimanna og því þurfi nákvæmara mat að fara fram á þeim heilsufarslegu áhættuþáttum sem tengjast skimunum.
http://www.infowars.com/columbia-university-body-scanners-increase-risk-of-skin-cancer/
![]()
Yfirmaður hló að litlum limi
Hefði átt að sleppa því, var barinn með lögreglukylfu
![]()
Myndaði starfsfélaga í nektarskima
Fékk aðvörun en starfsfélaginn er með móral
![]()
Nektarskimar gagnlausir segir séffi
Getur hæglega flutt ógrynni af sprengiefni í gegn um skimun
CC mynd: silas216

Comments
Powered by Facebook Comments