Paul Joseph Watson, Prison Planet.com
Þegar Naomi Wolf, áberandi vinstrikona og feministi í Bandaríkjunum, sté fram og varaði við því að Bandaríkin væru á leið til fasisma undir stjórn George W. Bush, með sínu ólöglega eftirliti, geðþóttavarðhaldi borgara og hervæðingu lögreglu, fékk hún lof og jákvæð viðbrögð. En þegar hún hélt áfram að vara við sömu atriðunum þegar Obama breytti engu í stefnu landsins, þá gerðust margir vinstrimenn andsnúnir henni.
En eins og sjá má í viðtali við Wolf á vinstri slagsíðunni Alternet, þá kann að vera að vinstrimenn séu loksins að átta sig á því að báðir flokkarnir í Washington eru hluti af vandanum, en ekki lausnin.
Justine Sharrock, sem skrifar fyrir síðuna, virðist eiga erfitt með að skilja að málflutningur Naomi Wolf er mjög líkur Alex Jones og mörgum sjónarmiðum Teveislufólksins, en það er óþægileg klípa fyrir fjölmiðla vinstrimanna sem margir hafa hlýðnir endurtekið árásir stórstraumsmiðilsins á vinsæla grasrótarnagla og svert þá sem öfgamenn eða jafnvel innlenda hryðjuverkamenn.
“Hún talar þeirra máli, vísar til landsfeðranna og frelsisstríðsins sem fyrirmynda, viðurkennir djúpstæðann ótta, varar við harðstjórn, fasisma, nasisma og herlögum. Þegar Glenn Beck varar við þessu þá hlægjum við. Þegar Wolf dregur sömu ályktanir, þá hlustum við. Hvernig geta báðir vængir talað um sömu atriðin, þó skoðanir þeirra séu svo ólíkar?” spyr Sharrock.
Ástæðan er, eins og Wolf útlistar, að Obama hefur viðhaldið, stofnanavætt og jafnvel útvíkkað sömu stefnumál og ollu því að vinstrimenn báru George W. Bush saman við Hitler, en sá samanburður er nú þegar Obama er forseti orðinn tabú, rasískt og dæmi um ‘jaðarmennsku’ samkvæmt stórstraumsfjölmiðlunum.
‘Bush lögleiddi pyndingar, en Obama er að lögleiða refsileysi. Hann lofaði að bakka með mál, en hann er nú að stofnanavæða þessi mál til frambúðar. Það er hræðilegt að vinstrimenn skuli ekki átta sig á því,’ svarar Wolf og bætir því við að samanburður á Obama og sögulegum einræðisherrum eigi ekki að vera bannaður þegar hann framfylgir svipaðri stefnu.
“Obama hefur gert hluti eins og Hitler gerði,” staðhæfir Naomi. “Ég ætla að segja þetta varfærnislega. Þjóðernissósíalistar smöluðu fólki og héldu því án dóms og laga, skrifuðu lög sem gerðu pyndingar refsilausar og njósnuðu um eigin borgara, alveg eins og Obama hefur gert. Þetta er ekki spurning um hvað hefur verið gert eins og Hitler gerði. Það er að það sem allir einræðisherrar gera, hægrisinnaðir eða vinstri, það er í framkvæmd hér og nú. Raunverulega baráttan er ekki milli vinstri og hægri, heldur milli lýðræðisafla úr öllum áttum og svo alræðisaflanna.”
Það er einmitt það sem vinstrimenn verða að skilja ef við eigum að endurvekja raunverulegt frelsi aftur í Bandaríkjunum. Eins og Wolf segir í viðtalinu, þá eru vinstrimenn afburðasnjallir í að berjast gegn alræðistilburðum ríkisins, en aðeins þegar republikanar eru við stjórn. Undireins og demókrati kemst að, þá leggjast þeir frjálslyndu (vinstrimenn) kylliflatir fyrir valdinu og ganga í kórinn sem syngur árásarslagara gegn öllum mótþróaseggjum og vísar þeim á bug sem hægri öfgamönnum sem eigi að svipta málfrelsinu, í algerri blindni fyrir því að nákvæmlega sömu lög eru svo notuð gegn þeim sjálfum þegar skrifstofan egglaga færist aftur til repúblikananna.
Vinstrimönnum er svo hætt við að snarsnúast og verða óvirkir þegar demókrati kemst að því að þeir tengja eigið sjálf og pólitísk völd við pólitíkusa, sem er einfeldningslegt dómsgreindarleysi þegar haft er í huga að stjórnmálamenn hafa ekki verið fulltrúar neins nema eigin spilltu eiginhagsmuna áratugum saman. Eins og Naomi leggur áherslu á: “Í sannleika sagt, frjálslyndir eru hættir að tala við aðra en þeirra eigin jámenn. Við þjáumst af samfélagslægum vanda sjálfsréttsýni og forsjárhyggju… Við lítum niður á fólk sem ekki er sammála okkur. Það þjónar okkur ekki vel.”
“Ég sagði einfaldlega, ekki bíða eftir lausnum frá tvíeinflokknum til að endurvekja stjórnarskrána eða lýðveldið. Kynslóð landsfeðranna var fædd af öllum stéttum sem fengu nóg og tókust á við hættuleg verkefni því þau voru innblásin af anda frelsisins. Yfir okkur hangir klíka ólígarka og það er okkar verkefni að taka saman höndum í grasrótinni og veita mótspyrnu,” staðhæfir Wolf til skýringar á því hví hún hljómar svo líkt Teveislufólkinu, sem telst til hægri vængsins í bandarískum stjórnmálum, þó sú hreyfing sé nú undir árás falsspámanna sem vilja taka hana yfir og stýra í kunnugleg hjólför.
Naomi, sem viðurkennir að hennar arfleifð sé frá Roosevelt, Medicare og alríkisstjórn komin (bandarísk vinstriarfleifð), lýsir nú stuðningi við stefnu hægrimanna, alvöru hægrimanna svo sem Ron Paul, sem vilja að ríkin auki sjálfstæði sitt á kostnað alríkisstjórnarinnar.
“Ef þú skoðar málin niður í kjöl, þá sérðu að styrking á sjálfstæði ríkjanna er vænleg leið til að vinna gegn söfnun valds á alríkisstigi. Sjáið til dæmis hvernig Kalifornía hefur ögrað Patriot Act lögunum, eða hvernig ríki eins og Vermont leiðir í baráttunni gegn spilingu í umsýslu kosninga. Þetta eru góð dæmi um hvernig Teveislufólkið hefur fundið lausnir hinum megin við strikið til að takast á við vandamál,” staðhæfir Naomi Wolf.
Viðtalinu lýkur með aðvörunum Wolf um yfirvofandi herlög.
“Ég tel að við höfum farið mjög langt niður á við. Ég hitti múslimska innflytjendur í Brooklyn sem voru teknir í kjölfar atburðanna 11. september, haldið við ömurlegar aðstæður, barðir og neitað um mannréttindi. Það svipar til upphafs ógæfunnar í Þýskalandi. Guantanamo var stæling á Gúlagi Stalíns. Hvers vegna erum við í sálfræðilegri afneitun á því að það séu fangabúðir sem jafnast á við þær þýsku eða sovésku? Sé horft til herlaga, Guð minn góður. Eftir að bókin kom út [Endalok Ameríku], þá hafa þeir beitt herdeildum í Bandaríkjunum og aftengt Posse Comitatu lögin [sem banna notkun hers innanlands]. Það er engin spurning, þetta ber að taka alvarlega. ”
http://www.prisonplanet.com/left-wing-icon-america-is-still-headed-towards-fascism-under-obama.html
CC mynd Thomas Good

Sama og á Íslandi, fjórflokkurinn gegn lýðræði
Svá góðr
2
“…þakka ber fyrir hugrakt og málsmetandi fólk ´eins og´ þessa djörfu valkyrju.” …vildi ég sagt hafa :/
Svá góðr
3
Wolf er kvenskörungu mikill og þakka ber fyrir hugrakt og málsmetandi fólk eins djörfu valkyrju. Nóg er af nytsömum sakleysingjum sem vilja ekki sjá, heyra né tala um það sem skiptir mestu máli af öllu.
Svá góðr
3