Næsta kynslóð kjarnorkuvera, AP1000, er á leiðinni, en ekki er tekið neitt tillit til þess sem við ættum að hafa lært á Fukushima.
Arnie Gunderson er gamall reynslubolti í kjarnorkuiðnaðinum. Hann hafði bent á veikleika í GE kjarnorkuverum eins og voru í noktun í Fukushima Daiichi, og eru raunar enn í notkun í hundruðum kjarnorkuvera um allan heim. Þær réttmætu athugasemdir rötuðu aldrei lengra en “í nefnd”, engar endurbætur voru gerðar í Fukushima fyrir slysið, engar endurbætur hafa verið gerðar á hundruðum systurofna um allan heim.
En enn verra er að næsta kynslóð kjarnorkuvera er nú að skríða af teikniborðinu og í framleiðslu og uppsetningu í nýjum orkuverum án þess að tekið sé tillit til þeirra mistaka sem nú er enginn vafi á að voru á hönnun og umhverfi GE kjarnaofna eins og voru í hræi orkuversins í Fukushima.
Hlustið á Arnie rekja málið. Það er 15 mínútna virði að vita sannleikann, en þurfa ekki að treysta á ropið í RÚV.
Fukushima and Its Impact Upon the Westinghouse-Toshiba Designed AP1000 Atomic Power Plant from Fairewinds Associates on Vimeo.

Comments
Powered by Facebook Comments