Myndir úr nektarskima af kvikmyndastjörnu

Staðhæfingar yfirvalda um að myndum úr nektarskimum sé tafarlaust eytt eftir að farþegi fer í gegn um skimum hafa reynst falskar þegar í ljós kom að myndir af indeverskri kvikmyndastjörnu, Shahrukh Kahn, voru prentaðar út og gengu svo á milli starfsfólks Heathrow flugvallar.

Adonis lávarður, yfirmaður öryggiseftirlits við almenningssamgöngur, sagði í síðustu viku að myndunum úr skimanum væri eytt “án tafar” og starfsfólk flugvallarins sem sæi um skimunina væri þrautþjálfað og undir eftirliti.

“Það er mjög mikilvægt að ítreka það að myndunum sem teknar eru af líkamsskimanum er eytt án tafar þegar farþeginn hefur farið í gegn um skimunina,” sagði Adonis við London Evening Standard.

Khan sagði um atvikið: “Ég var nýlega í London og þegar ég fór í gegn um flugvöllinn og þessar nýju vélar eru komnar, líkamsskimarnir.  Þú verður að sjá þá.  Þeir eru vandræðalegir – ef þú hefur ekki fengið ríkulega vöggugjöf,” og vísaði hann þar í hve greinilega mynd skiminn gerir af útlínum kynfæranna.

“Ég var ögn skelkaður.  Eitthvað gerðist [inn í skimanum] og ég kom út.  Þá sá ég stelpurnar – þær voru með útprentun.  Ég leit á þær.  Ég hélt að þær væru með einhver form sem þyrfti að fylla út.  Ég sagði ‘látið mig fá þetta’ – og það sást allt innan fata.  Svo ég áritaði myndina fyrir þær,” skýrði Khan frá.

Kahn hefur greinilega ekkert að fela og finnst í lagi að ‘stelpurnar’ prenti út myndir af sér nöktum og láti ganga sín á milli. 

En hvað finnst þér um þig og þína fjölskyldu þegar hún fer í gegn um skimana?  Er í lagi að nektarmyndir af börnunum séu prentaðar út og látnar ganga á milli perranna?  Myndir af gjafvaxta dætrum gangi milli strákanna?

Eða er allt í lagi bara ef þessir lágt settu öryggisliðar geta ekki prentað út og farið frjálslega með myndirnar?  Treystir þú því frekar að kerfið eyði gögnunum ‘tafarlaust’?  Er ekki freistandi að geyma þau?  Þau gætu komið sér vel seinna, upplýsingar gefa völd.  Sömu aðilar reyna að lögbinda internetþjónustur til að geyma alla logga og allar mögulegar upplýsingar um notkun internetsins, því þá að henda þessum fínu gögnum?

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments