Myndir frá IMF/AGS mótmælum þann 14.7.2010

Í dag stóðu nokkrir rugludallar með eða án myndavéla fyrir framan aðsetur IMF á Íslandi og mótmæltu ráðleggingum sjóðsstjórans.  Sumir skemmtu sér hið besta og fengu útrás fyrir sína sköpunargleði.

Andi Jóns Vals flaug yfir hópinn í formi upptöku sem spiluð var annað slagið.  “Vanhæf ríkisstjórn, vanhæf ríkisstjórn.!!”.

Einn áttaviltur smiður barði í allar rennur sem hann sá.

Aðrir tóku undir með pottum og pönnum.

Einn tók undir með lúðri.

Gott ef ekki einhverjir reyndu að betrumbæta helstu meistarstykki Mósarts.

Lögreglan lét sig ekki vanta enda helstu mikilmenni Íslands mætt til að taka þátt í fjörinu.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: , ,