Myndaði starfsfélaga í nektarskima

Það eru ekki nema 10 dagar síðan við vörum kölluð vænisjúk fyrir að telja nektarskima óeðlilegt brot á rétti fólks til að bera sig með sæmd án þess að vera berað með tæknigöldrum og innstu einkamál skoðuð af þurrgóma girndarþrælum með sjúklegt vald yfir sjálfræði og líkama almennings.  En þetta er í annað sinn sem okkar viðhorf er staðfest á þessum tíma og vafalaust væri hægt að finna fleiri dæmi.

Nektarskimarnir nýtast ekki til að finna sprengiefni eða nærbuxnasprengjur.  Starfsfólkið er engin ofurmenni án mannlegra fýsna og galla. 

Talsmaður Scotland Yard segir frá: “Lögreglan fékk ábendingu varðandi atvik sem gerðist í rana 5 á Heathrow flugvelli þann 10. mars síðastliðin.  Fyrsta áminning um áreitni hefur í framhaldinu verið gefin út til 25 ára karlmanns.”

Starsfmaður BAA tók ljósmynd af samverkakonu sinni, Jó Margetson, þegar hún gekk óvart í gegn um nektarskimann.

“Ég þoli ekki að hugsa um þennan atburð við nektarskimann,” sagði hún við dagblaðið Sun.  “Ég er algerlega í sjokki.  Ég talaði við lögreglu um það.  Ég er í of mikilli geðshræringu til að fara í vinnuna.”

Hvað með okkur hin?  Sem verðum að ganga í gegn um nektarskimann eða fyrirgera fríinu?  Senda börnin okkar þarna í gegn?  Hvað um okkur, getum við kvartað?  Getum við kært eða fylgst með hvað verður um nektarmyndirnar?  Hvort einhver tekur mynd af skjánum eða prentar út?  Eða hvort ríkið geymir gögnin þvert á yfirlýsingar um annað?

Það er einnig táknrænt að maðurinn fékk aðvörun eftir atvikið.  Hann verður vafalaust varkárari næst, þegar hann vill geyma persónuleg afrit af nektarmyndum af fólki sem hann kannast við, eða vekur aðrar kenndir hjá honum.  Ekki vill hann fá aðra aðvörun um áreitni.

Airport worker caught photographing screen as female worker passed through naked scanner

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments