Smiley face
harpa 4

Mótmæli gegn IMF og Seðló 27. okt

Höfundur Starfsmenn þann . Flokkur Einkavinavæðing og ríkisvæðing skulda, Fundir og mannfagnaðir

 
Rétti tíminn til að andmæla stöðu heimila landsins er þegar Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn, Seðlabankinn og Íslenska ríkið halda alþjóðlega ráðstefnu, montfund, um hvað rosalega vel hafi til tekist hér á landi í samstarfi þessara aðila við að koma bankakerfinu af stað eftir hrun. Dagsetningin er 27 október, á fimmtudegi í Hörpunni. Held að þarna sé besta tækifærið fyrir venjulega Íslendinga til að segja þessu fólki hvað okkur finnst um hvernig þeim hafi til tekist í skuldamálum heimilanna. Nú er bara að skipuleggja. Þeir eru að setja þessar svokölluðu lausnir sem heimilunum er boðið upp á sem útflutningsvöru, finnst ykkur rétt að mæla með samstarfi þessara aðila við heimili fólks í öðrum löndum.

„Efnahagsáætlun Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur skilað miklum árangri við að koma á stöðugleika í íslenskum þjóðarbúskap og stuðla að efnahagsbata,“ segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri og bætir við: „Hér kunna að vera athyglisverðir lærdómar fyrir alþjóðasamfélagið.“

Hvað finnst þeim sem er með stökkbreytt lán á heimilinu sínu um þann lærdóm sem alþjóðasamfélagið getur lært af þessu samstarfi aðilanna, eigum við að láta alþjóðasamfélagið vita með því að mæta fyrir utan og segja þeim hvað okkur finnst.

„Við hlökkum til að ræða opinskátt um hið „algera fárviðri“ sem skall á Íslandi árið 2008, um núverandi stöðu og þá lærdóma sem draga má af reynslu Íslendinga. Það gleður mig að geta sagt að gagnvirk samvinna við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn stuðlaði að því að Ísland hélt velli sem norrænt velferðarríki,“ segir Árni Páll Árnason, efnhags- og viðskiptaráðherra.

Það er frábært að Árni Páll er tilbúinn að ræða við félaga sína um hvað vel hafi til tekist. Ert þú sammála að vel hafi til tekist? Finnst þér Ísland vera norrænt velferðaríki? Ef ekki þá er tækifærið að láta alþjóðasamfélagið vita.

Eigum við að ræða opinskátt við alþjóðasamfélagið um reynslu venjulegra heimila með stökkbreytt lán og kynna verðtrygginguna á heimilslánum fyrir þeim?

Nú er tækifærið sýnist mér, 27 október fyrir framan Hörpuna.

Held að best sé, miðað við að þetta er fimmtudagur og þeir sem eru svo heppnir að hafa vinnu komast ekki frá svo glatt, að miða við að sem flestir komi um fjögurleitið um daginn og svo geta þeir sem komast, skotist í hádeginu og verða kannski svo heppnir að fá að hlusta á aðalræðu dagsins sem Steingrímur Sigfússon heldur í hádeginu. Veðurspáin fyrir fimmtudaginn er góð, léttskýjað, regnlaust og nánast logn og er ég alveg viss um að það verða margir sem mæta strax um morguninn kl 8 þegar Jóhanna Sigurðardóttir heldur setningaræðuna og verða þarna allan daginn að andmæla því að allt sé í lagi hér á landi hjá heimilum landsins.

Hér er dagskráin frá 15.45 til kl 17.15 þegar ráðstefnunni líkur en þeir sem sitja fyrir svörum þennan lokapart á ráðstefnunni eru nú engir aukvisar en þeir eru m.a. Martin Wolf frá Financial Times, gott að láta hann vita hvað okkur finnst, hann kemur því kannski út á meðal annara í gegnum blaðið sitt. Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, ekki að búast við að hann sjái ljósið. Simon Johnson frá MIT, sama skóla og Hannes Smárason útskrifaðist frá á sínum tíma. Nemat Shafik frá AGS, hann og Már haldast sennilega í hendur allan tímann. Gylfi Zoëga frá Háskóla íslands til að leggja blessun fræðamannasamfélagsins á gjörninginn og að þeir sjái ekkert athugavert við þessi vinnubrögð AGS, Seðlabankans og Ríkisstjórnarinnar og svo síðast en ekki síst Paul Krugman frá Princeton háskólanum, honum finnst allt í lagi að laun íslendinga hafi lækkað um 20 til 30 % að raungildi frá hruni og eignir hafi lækkað um sennilega sömu tölu, en ég er ekki jafn viss um að hann viti eða átti sig á því að lánin okkar hafi líka hækkað um 40 til 150 % á sama tíma sem við ein þjóða höfum þurft að í augu við vegna verðtryggingarinnar á íslensku lánin og falls krónunnar á erlendu gengislánin.
 

Lyklar:,

Skrípó