“Mótmælendurnir” eru al Quaeda!

Þetta er ruglingslegur heimur, en nú er NATÓ að hjálpa al Quaeda við að koma Gaddafi á kné í Líbíu.

Bandaríkjamenn eru að nota “eignir” sínar (assets) í Miðausturlöndum og Norður Afríku til að róta í valdastrúktúrnum, sennilega til að gera innrás í Íran mögulega, eða kannski að láta draum Brzezinski rætast um að fá Íran til að ráðast á Rússland.  Í öllu falli eru bandarískir baktjaldamakkarar ekki að hjálpa almenningi eða knýja á meira frelsi fyrir fólkið, á sama tíma og þeir þrengja að frelsi einstaklinga í sínu eigin landi.

Þegar þeir svo nota eignir sínar á svæðinu, þá nota þeir í leiðinni listann, eða gagnagrunninn, en það er einmitt upprunalega merking al Quaeda!  Listinn yfir menn og smákónga sem hægt er að fá til að sinna viðvikum gegn greiðslu.  Eins og Osama bin Laden.  Eins og Anwar Al Awlaki, CIA rakkann.

Gaddafi hefur ekki verið að gera árásir með her sínum á “mótmælendur”.  Mótmælendurnir hafa ekki flugvélar, flugskeyti og eldflaugar í fórum sínum.  Það eru smákóngarnir og al Quaeda liðarnir sem eru að herja á Gaddafi.

Gaddafi er ekkert góðmenni, en það er hlægilega barnalegt að halda að “við” séum að “hjálpa” til við einhverjar lýðræðisumbætur í þessu landi, eða öðrum.

Alex Jóns fer yfir stöðuna með Webster Tarpley í þessum ágæta hluta útvarpsþáttar síns frá því í dag.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments