Morgunblaðið vill banna Bíblíuna

Hvort Davíð Oddsson er fjandinn sjálfur eða bara lítill kall með ritskoðunaráráttu veit ég ekkert um en stjórnendur Morgunblaðsins báðu Jóhönnu Magnúsdóttur bloggara að taka út tilvitnun í Bíblíuna.  En í nýlegri grein skrifar hún eftirfarandi:

En af hverju er ég farin að tala um jafnrétti þegar ég er að fjalla um Biblíuna?

Þegar eg fjallaði um jafnrétti samkynhneigðra nýlega kom einn Biblíutrúarmaðurinn af mörgum inn á síðuna mína of fór að vitna í “Orð Guðs” gegn samkynhneigð.  Ég var að sjálfsögðu ósammála manninnum, og fór að vitna í félagslegar aðstæður þessara setninga og draga úr o.s.frv.  en eins og allt of allt of margir, þá trúir hann að þessi ljótu og særandi orð, sem reyndar jaðra við hegningarlög séu “Orð Guðs” ..

Ég fékk í framhaldinu áminningu frá lögmanni Mbl.is um að taka út þessar setningar úr athugasemdakerfi mínu, því þær brytu í bága við almenn hegningarlög.

Setningarnar sem um ræðir ætla ég ekki að setja hér inn, enda bryti ég landslög. En fólk getur flett þeim upp í Biblíunni sinni, sem hefur engan varúðarstimpil á sér, eða rautt merki eins og ofbeldismyndirnar í sjónvarpinu. Þetta eru þessar tvær setningar úr Gamla testamentinu:

3.Mós.18:22  3.Mós.20:13

Að mati lögmanns Morgunblaðsins eru þessar setningar brot á ákvæðum 233. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og er því óheimilt að birta á mbl.is

Samkvæmt þessu telur Morgunblaðið boðskap Biblíunnar brjóta í bága við íslensk hegningarlög.  Auðvitað eru þessi orð gróf og ekki í takt við veruleikann en banna beinar tilvitnanir í mest seldu bók heims er auðvitað ekkert nema ritskoðun og frekja.  Davíð Oddsson og vinir  á Morgunblaðinu telja hlutverk sitt vera að stjórna umræðunni og hafa hemil á fólki.  Það geta þeir gert í krafti stöðu sinnar og tengsla við stjórnkerfið.  Ef þessi frekja væri bara bundin við Davíð og Sjálfstæðisflokkinn svæfi ég vel á nóttunni en því miður er það ekki svo.  Fólk í öllum flokkum og trúardeildum hefur svipaða ritskoðunarsýn á veröldina og sjálfur arkitekt hrunsins á Íslandi.  Það vill bara banna allt sem getur orkað tvímælis og sært einhverja.  Auðvitað á að banna barnaklám, dýrklám, venjulegt klám, myndir af beru fólki en á að banna kossa á almannafæri?  Hvar eru mörkin sem fólk vill hafa í þessu landi.  Liggja þau bara einhverstaðar uppi í skýjunum og menn eins og herra Hrun geta látið þau rigna yfir fólk að vild.  Banna óþægilega umræðu  eða bækur eftir þörfum.

Því miður virðist stefnan liggja öllu í þessa ritskoðunarátt Davíðs.  Kryppan hefur birt fréttir um nýja Internetið þar sem frjálst og óheft umræða verður háð leyfi stjórnvalda.  Allt til að vernda börnin okkur frá klámi og koma í veg fyrir hryðjuverk.  Þó ég sé algerlega sammála þessum markmiðum hef ég engan áhuga á að vera háður leyfi til að mega skrifa pistla hér á Kryppunni.  Þau lög sem eru í gildi í dag duga ágætlega þó sjálfsagt megi lagfæra þau eins og önnur mannanna verk.  Segjum Nei við Davíð og Nei við hryðjuverkum!

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments