Morðóði bílasalinn

Það er ekkert vit í þessu plotti, það er gegn hagsmunum Íran, segir Hillary Mann Leverett, fyrrum foringi í Búsh stjórninni.

Mann Leverett var forstöðumaður Íran-Afganistan og Persíusviðs Öryggisráðssins í Búsh stjórninni, hún þjónaði sem sérfræðingur í málefnum miðausturlanda í stefnumótunarnefnd utanríkisráðuneytisins og ráðgjafi um stjórnmálaástand í miðausturlöndum, mið-asíu og afríku í fagteymi Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum.

Í ferilskrá hennar segir að hún hafi birt fjölmarga pappíra um málefni Íran auk annara miðausturlanda, miðasíu og suðasíu, auk málefna Rússlands.  Hún hefur flutt erindi um samskipti Bandaríkjanna og Íran við Harvard, MIT, Þjóðvarnaskólann, háskólann í NY, norsku utanríkisstofnunina og hjá stórum rannsóknarmiðstöðvum í Kína.

Hér fer hún yfir það hvers vegna fréttaflutningur um að Íran sé ábyrgt fyrir gjörðum bílasalans (Mansour J. Arbabsiar ) eru úr lausu lofti gripnar.  Þula CNN reynir sitt besta til að koma henni af sporinu, meðal annars með því að spyrja hvort hún telji að einhverjir í stjórnkerfinu séu viljandi að rangtúlka gögn.

Því svarar Hillary með því að segja það erfitt fyrir sig að ímynda sér að fólk í stjórnkerfinu vinni gegn hagsmunum þjóðar sinnar viljandi og freistandi að halda að um mistúlkun gagna en á góðum forsemdum sé að ræða, en svo vísar hún í sögur frá sinni stjórnartíð, þar sem sögum um innkaup Saddams Hussein á “yellowcake” (hráefni í atómvopn) var viljandi haldið að stjórnkerfinu og fjölmiðlum, þó þær væru uppspuni og menn hafi vitað það.  Hún talar um blóðlosta og gefur í skyn að verið sé að nota þetta á svipaðan hátt og “gjöreyðingarvopn Saddams” voru notuð til að réttlæta óréttmætt árásarstríð gegn Írak.

 

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments