Morð.gov

Hlustið á trommuslátt dauðamarssins, þegar neðanjarðarlest bandaríska heimsveldisins, línan frá Lýðræði til Alræðis, másar inn á næstu brautarstöð, aftökur borgara án dóms og laga.

Stjórn Obama hefur tekið þá stórfurðulegu ákvörðun að heimila aftöku bandarísks borgara hvar sem til hans næst, eins og greint er frá í frétt New York Times.  Það eru svo sömu mennirnir sem fagna þessari ákvörðun og fögnuðu pyndingum og Gitmo fangabúðunum.  Það er vegna þess að fórnarlambið fyrirhugaða er “róttækur múslímaklerkur”, Anwar al-Awlaki, faæddur í New Mexico, bjó um árabil í Bandaríkjunum en er nú “í felum í Yemen.”

Svo sannarlega stófurðulegt.  Eitt sinn þurftum við réttarhöld til að fella dauðadóm, og stjórnarskráin kveður enn á um slíkt.  Ríkið þarf að flytja mál og sanna fyrir “óvilhöllum kviðdómi” áður en það getur tekið mann af lífi.  Það er að vísu rétt, að pólitíkusar og skriffinnar svindla oft í þess háttar réttarhöldum, á sama tíma og löggur og saksóknarar fikta í sönnunargögnum, en við hverju er svo sem að búast af stjórnvöldum?  En nú hefur risinn ekki lengur þolinmæði í sýndarréttarhöld, ekki fremur en hann nennir að fá leitarheimildir, virða habeas corpus réttindi, álíta sakborning sýknan uns sekt er sönnuð, sýna fram á mótíf eða annað pjatt.

Jafnvel Keith Olbermann, sem hefur dregið taum Obama í gegn um ýmis forarsvöð, á í vandræðum með að kyngja dauðadómum sem brjóta stjórnarskrárbundin réttindi borgaranna.

Murder.gov

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments