Monsanto og Marlboro kennt um fæðingagalla

Tóbaksplöntur, mynd CC bsterling
Argentínskir tóbaksbændur hafa höfðað mál á hendur tóbaksframleiðandanum Phillip Morris, öðrum bandarískum tóbaksframleiðendum og efnavopnarisanum Monsanto fyrir að hafa viljandi eitrað fyrir bændum og valdið hrikalegum fæðingagöllum hjá afkvæmum þeirra.
Tóbaksframleiðendurnir fengu bændurna til að rækta aðra tegund tóbaks og með henni þurfti að nota mun meira magn af eitruðum arfaeyði og skordýraeitri. Þeim var sagt að nota vörur frá Monsanto, svo sem Roundup, og að þær væru algerlega skaðlausar. Monsanto og Phillip Morris auðhringirnir hvöttu til að nota þessi efni í óhófi og fræddu þá ekki um skaðsemi, né létu þeim í té nauðsynlegan hlífðarbúnað.
Meðal þeirra fæðingagalla sem nefndir eru í stefnu þessara nokkurra tuga bænda eru heilalömun, hreyfihamlanir, flogaveiki, mænuklofi, þroskahamlanir, meltingarsjúkdómar, meðfæddir hjartagallar, Downs heilkenni, fingur sem vantar og blinda.
Monsanto auðhringurinn sem margir vilja nefna Monsatan framleiddi meðal annars efnavopn eins og Agent Orange og er stærsti framleiðandi erfðabreytts útsæðis, eins og maís og soyja, sem meðal annars má finna í íslenskum matvörum og sælgæti eins og Nóa kroppi og Hrís.
Monsanto and Big Tobacco Blamed for Birth Defects








