
Í dag kl 14 verða sýndar tvær heimildarmyndir um peningakerfið, virkni þess, sögu og hvernig hægt er að breyta peningakerfi og bönkum úr húsbóndum okkar og aftur í þjóna. Bankar eiga að vera stoð samfélagsins og aðstoða fólk við framkvæmdir og nýsköpun, en eru nú orðnir að sníkjudýrum, sem soga fé út úr þjóðfélaginu og gera það snauðara.
Fyrri myndin, „Money as Debt“, er ein besta kennslustund í peningamálum og hagfræði sem ég veit um. Þó er hún aðeins 45 mínútur.
Seinni myndin, „The Secret of Oz“, er ný heimildarmynd eftir Bill Still, sem var einn af framleiðendum stórvirkisins The Money Masters, frá því 1995. Í myndinni er rakin saga peningakerfisins, með sérstakri áherslu á sögu bandaríska peningakerfisins, því það er tiltölulega nýtt og hefur sveiflast milli nútíma seðlabankapeningakerfis og svo annarra aðferða við að gefa út peninga, án þess að sökkva þjóðum í skuldir við alþjóðlegu bankamennina, eða aðra svipað þenkjandi aðila, sem vilja gjarna lifa vel á því að láta aðra strita.
Sýningar hefjst klukkan 14 á fyrri myndinni, og klukkan 15 á þeirri seinni. Aðgangur er ókeypis og sýningar eru í sal 1 í Háskólabíó. Nú er rétti tíminn til að “skreppa” úr vinnunni ef þess er kostur, eða taka sér frí. Það borgar sig að þekkja peningakerfið, annars erum við bara fórnarlömb þeirra sem misnota það.
Comments
Powered by Facebook Comments