
Af hverju hefur engin lækning fundist við krabbameini? Við höfum sett milljarða á eftir milljörðum dollara í rannsóknir á krabbameini, en samt heldur tíðni krabbameina áfram að þjóta upp.
Krabbamein eru meðal helstu dánarorsaka um allan heim og samkvæmt tölum World Health Organization er búist við að tíðni dánarorsaka af völdum krabbameina muni því sem næst tvöfaldast á næstu 20 árum. Af hverju er þetta svona stórt vandamál? Við höfum eytt gríðarlegum haug af peningum og heilu skaflarnir af vísindamönnum hafa unnið að þessu í áratugi.
Á hverju ári eru endalaus áheit og safnanir fyrir krabbameinsrannsóknum. Bandarísk stjórnvöld bókstaflega sturta fé í krabbameinsrannsóknir. Við eigum að teljast “þróaðasta” samfélag í sögu jarðarinnar. Svo, hvar er lækningin við krabbameini?
Og af hverju bara versnar ástandið?
Lesið meira, til dæmis hvernig tíðni krabbameina er hærri á vesturlöndum en í Afríku, hvernig fleiri látast af ofskömmtun eða annari rangri notkun læknalyfja heldur en í umferðarslysum, hvernig matvælaiðnaðurinn notar allskyns óholl efni í vörur sínar, hvernig markmið lyfjafyrirtækja eru þau að koma sem flestum lyfjum í almenning og afkoma þeirra er virkilega góð. Helstu óvinir lyfjafyrirtækjanna eru “kuklarar” sem vilja benda fólki á mikilvægi heilbrigðs mataræðis og vítamína, en ekki er hægt að fá einkaleyfi á vítamín og þau eru því gagnalus, eða hreinlega fyrir framförum í hagnaði lyfjafyrirtækja.

Comments
Powered by Facebook Comments