Microsoft Natal – Stasi heima í stofu

Natal verkefnið á vegum Dverghuga felst í því að nota myndavél og hljóðnema Xbox leikjatölvunnar í stað hefðbundinna stjórntækja.  Þú slærð hendi út í loftið og á skjánum lendir hún á vanga illmennisins og með viðeigandi hljóðbrellu syngur í kjálka og hann hrökklast undan.  Þú velur úr lista með því að hreyfa hendi, eins og þú sért að snúa lukkuhjóli Atlantsolíu, aftur og aftur til að fara hratt, heldur hendinni út og hreyfir hægt til að fara hægt í gegn um listann.  Bending út í loftið og þú hefur valið hlut úr listanum.  Spörk, hopp, skíðahreyfingar, bendingar, pot og svo framvegis eru túlkuð og hafa viðeigandi áhrif á þann hugbúnað sem er í gangi á tölvunni. 

Tölvan skilur einnig hljóð og jafnvel tungumál, fyrst ensku, svo vafalaust fljótlega önnur mál.

Til þess að þetta sé mögulegt þarf flókin eftirlitsbúnað í stýrikerfi tölvunnar.  Hún þarf að túlka hreyfingar, þekkja fólk í sundur, og skilja hvað um er að vera fyrir framan myndavél og hljóðnema. 

Í framhaldinu á að útvíkka kerfið svo það geti njósnað betur um “húsbændurna”, þekkja íþróttabúninga og svipbrigði, til að vita með hverjum þú heldur og það má auðveldlega yfirfæra á pólitík eða fylgni við aðrar hjarðbrautir sem í boði eru.  Hvað talar fólk um þannig að boxið heyri, þannig má læra ýmislegt.  Auðvitað er eldri tækni þegar aðgengileg sem endurritar samtöl í texta og leitar að lykilorðum í markaðslegum tilgangi, eða til að safna gögnum um hvers konar hryðjuverkamaður notandinn er, hvaða lög hann brýtur, hvaða ósiði hann hefur, og sérstaklega, hvaða leyndarmál hann felur.

Tölvan er svo auðvitað nettengd svo fólk geti “leikið” saman og Stasi fulltrúinn geti hringt í höfuðstöðvarnar með skýrslu dagsins.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments