Menntun: Veit ekki hvað ‘þýska’ er

Almenningur mun ekki vita hvernig sannfæring hans var framleidd.  Þegar tæknin hefur verið fullkomnuð, munu allar ríkisstjórnir sem hafa verið við völd í eina kynslóð eða meira, geta haldið stjórn á þegnum sínum án hervalds eða lögreglu…
Bertrand Russel

Er fyrirbærið “unglingastjörnur í sjónvarpi” fyrir tilviljun skaðlegt samfélaginu og þroska almennings, eða er verið að færa vitsmunastig almennings niður með yfirvegun og vilja?

Ef þú spyrð mig, þá er enginn vafi í mínum huga.  Þjóðfélagið breytist smátt og smátt, kynslóðir breytast að innræti, siðferði og áhugamálum.  Einfeldningar telja þessar breytingar tilviljunarkenndar, en aðrir sjá hvernig þeim er stýrt, og nú er þeim stýrt á heimsvísu.

Fyrir utan menntakerfið, þá má einnig draga úr andlegu þreki fólks með fæðunni.  Það eru aðeins fáeinir auðhringir sem framleiða mest af allri fæðu heimsins.  Að auki eru vinnsluaðferðir staðlaðar, sumt með reglugerðum, svo sem gerilsneyðing á mjólk, annað vegna þess hve mikið þær einfalda vinnslu matvælanna, lengja geymslutíma, gera vöruna meira aðlaðandi, draga úr kekkjum og gefa gömlu og gráu kjöti með geymslubragði nýtt líf með töfrum “bragðaukandi efna”, eða MSG eins og það er einnig nefnt.  Svo eru það allar erfðabreyttu jurtirnar…  Nú eða flúormanían.  Nasistar og sovétharðstjórnin notuðu flúor í fangabúðum sínum til að gera fangana meðfærilegri.

Alan Watt segir í útvarpsþætti sínum Cutting Through The Matrix:

Í fornöld gerðu Egyptar tilraunir til að gera þræla meðfærilegri með því að takmarka aðgang þeirra að ákveðnum fæðutegundum.  Þeir takmörkuðu magn fæðu, en einnig fengu þrælarnir ekki ákveðnar tengudir fæðu og prestarnir fylgdust með áhrifunum á bandingjana þar til þeir vissu alveg hvaða áhrif hver fæðutegund hafði.  Þannig gátu þeir ræktað kynslóð eftir kynslóð af þrælum, munið, Egyptum tókst að viðhalda samfélagi sínu í þúsundir ára, þúsundir ára af þrælahaldi.  Þeir misstu aldrei tökin, vegna þess að þeir ræktuðu þrælana.

Við getum sannarlega horft upp á fína framtíð fyrir afkomendur okkar, ef við nennum ekki að sjá hvað er að gerast.  Þúsundir ára af þrælahaldi.  Lýðveldi eru undantekningin, alræði er reglan.  Það þarf að verja lýðveldi og frelsi einstaklinga til að koma í veg fyrir samþjöppun valds og andlegan og jafnvel líkamlegan þrældóm fjöldans.

Er þessi unglingastjarna undantekning?  Hvað með keppenda Suður Karólínu í unglinga-ungfrú Ameríka, árið 2007:

Dumbed-Down Population: Teen celeb Justin Bieber Doesn’t know what ‘German’ Is…

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments