Mynd CC kadluba
Bestu fiskimið Japana voru undan Fukushima Dai-ichi kjarnorkuhræinu sem sprakk í loft upp í mars á þessu ári.
Nú er bannað að veiða á þessum miðum. Einn og einn bátur fer fyrir hafró að veiða sýnishorn af fiski og taka botnsýni, en niðurstöðurnar eru ekki gæfulegar. Vonast var til að straumar myndu fljótlega þynna geislamengunina út, en það gerðist ekki því mengunin er bara svo mikil. Botnleðjan er geislavirk og óþverrinn er að færa sig upp fæðukeðjuna. Þannig mælist nokkuð magn af caesíum í túnfiski sem veiddur er 900 km frá verinu.
Sjómenn hafa áhyggjur af því að fiskveiðar á svæðinu verði bannaðar í 30 ár og þar með verði fótunum kippt undan fiskiðnaði á svæðinu.
Tengt:
Mynd CC kadluba
Comments
Powered by Facebook Comments