MBL.IS er nú meira bullið

Í nýlegri frétt á mbl.is um hina skemmtilegu nektarskanna kristallast sú sýn á veruleikann sem stjórnvöld vilja að almenningur hafi.  En í fréttinni segir að tækið hafi verið notað með “góðum” árangri á Heathrow flugvelli.  Myndir úr því séu ekki geymdar og ekki heldur hægt að prenta þær út.  Alla í nafni persónuverndar, auðvitað.  Tækið hafi síðan verið sett upp til að góma hættulega hryðjuverkamenn.

En hvort þessi “góði” árangur þýði að yfirvöld hafi virkilega gómað einhverja hryðjuverkamenn með hjálp tækisins eða bara að það taki “rosa” flottar myndir fylgir ekki með fréttinni.  Lesandinn þarf að geta í þá eyðu en eftir lestur þessarar fréttar er hann samt á því að nektarmyndir af honum sjálfum og börnum hans séu af hinu góða enda myndirnar ekki geymdar!  Eina neikvæða orðið í allri frétinni er hugsanlega “umdeilt” en alveg látið vera að útskýra af hverju.  Öllu púðrinu eytt í að segja af hverju tækið ætti ekki að vera umdeilt.

Það þarf varla hálfa brauðsneið fyrir heila til að sjá að svona græja geymir myndir og hægt er að prenta þeir út.  Starfsmaður gæti líka bara tekið myndir af skjánum með farsímanum sínum.  Auðvitað eru svona tæki ekki að öllu leyti ill.  Einhverjir barnaperrar og gægjufíklar geta þarna fengið útrás fyrir fíkn sína og verið á launum frá ríkinu á meðan.

Fréttamennska MBL.IS nær nýjum lægðum með þessari frétt og er af mörgu að taka.  Því framleiðandi þessara nektarskanna gæti ekki samið jákvæðari auglýsingu þó hann reyndi.

http://neptunus.blog.is/blog/neptunus/entry/1080676/

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments