BoingBoing vefmiðillinn fékk ábendingu frá lesenda um bann MBL.IS við notkun “djúptengla”, það er að segja, að nota hlekk beint á tiltekna frétt eða síðu. Einungis er heimilt að grunn-hlekkja á sjálft grunnið, mbl.is.
Það túlkar Boing-Boing þannig að bannað sé að tala um aðrar fréttir en þær sem eru á forsíðu.
“Ah… þarna er dæmi um skuldbindinguna um almannaþjónustu sem gerir blaðamennsku svo mikilvægan þátt í frjálsu samfélagi!” segir BoingBoing.
Hér er djúptengill á frétt Boing Boing
Rob Beschizza, gestur Boing Boing segir: …hugmyndin um að einhliða, ímyndaðan samning sem segir að þú getir ekki sagt öðrum frá staðsetningu vefsíðna sem eru opnar öllum, er algerlega galin.

Hugmyndina að “djúptengli” hefur mbl ef til vill fengið frá nýlegu máli tónlistariðnaðarins gegn kínverskri leitarvél, Baidu.com, en dómur í því máli féll kínversku leitarvélinni í hag. Baidu má birta “djúptengla” í mp3 lög hvar sem hún finnur þau á netinu og það er ekkert upp á þá að klaga með það!
Hér er djúptengill á frétt TorrentFreak um málið

Comments
Powered by Facebook Comments