Í grein sem birtist í The Daily Telegraph er spáð yfir 10% hækkun á matvælum innan skamms í Bretlandi. Mjólk, ostar, svína-, lamba-, og nautakjöt og afleiddar afurður munu hækka vegna þess að verð á fóðri hefur snarhækkað ásamt lélegri uppskeru.
Stærsti fóðursali Bretlands hefur tilkynnt um 20% hækkun á fóðri til bænda frá seinasta ári. Verð á fóðurhveiti hefur einnig hækkað um 30%.
Bresku bændasamtökin segja að þurrt veður hafi truflað heyskap bænda í sumar um næstum 50%.
Matarframleiðendur munu ekki fara varhluta af þessari þróun sem bætist ofan á allt að 23- 39% hækkun á pálmaolíu og kakói.

Comments
Powered by Facebook Comments